Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Birgir Olgeirsson skrifar 4. júní 2026 16:01 Jóhann Páll Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra, á Orkuþingi Vestfjarða. Aðsend Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að stóri flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða liggi í því hvernig tengikostnaður nýrra virkjana er reiknaður. Hann boðar frumvarp næsta haust sem eigi að greiða leið fyrir Hvalárvirkjun, Austurgilsvirkjun og mögulega Skúfnavatnavirkjun.
Jóhann Páll sagði í sérstakri umræðu á Alþingi í dag, sem María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, hóf að staða orkumála á Vestfjörðum væri „algerlega óviðunandi og óboðleg“. Ríkisstjórnin væri staðráðin í að bæta úr henni. Að hans mati er eina raunhæfa heildarlausnin sú að virkja í Hvalá og Austurgili, og jafnvel Skúfnavötnum, og tengja framleiðsluna um nýjan afhendingarstað í Miðdal, þaðan niður að Kollafirði og áfram að Mjólká. Ráðherra sagði að þannig mætti auka orkuöryggi, styrkja flutningskerfið, bæta afhendingargæði, draga úr flutningstapi og skapa möguleika á svokallaðri eyjakeyrslu, þar sem Vestfirðir gætu betur staðið af sér truflanir í flutningskerfinu. Vill vinda ofan af lagabreytingu frá 2018 Helsta hindrunin væri hins vegar lagabreyting frá árinu 2018. Hún hefði að sögn ráðherra gert það að verkum að Landsnet gæti ekki með fullnægjandi hætti horft til heildarávinnings fyrir raforkukerfið þegar tengikostnaður nýrra virkjana væri metinn. „Þetta er í rauninni stóri flöskuhálsinn þegar kemur að Hvalárvirkjun og í raun Austurgilsvirkjun líka,“ sagði Jóhann Páll. Hann sagði að stjórnvöld ætluðu að vinda ofan af þessari breytingu. Á næsta löggjafarþingi verði lagt fram frumvarp til breytinga á raforkulögum. Þar verði tryggt að við útreikning tengigjalda og kerfisframlags verði horft til kerfislegs ávinnings nýrra tenginga. Þannig verði meðal annars metið hvort nýjar virkjanir dragi úr flutningstapi, bæti nýtingu innviða, auki raforkuöryggi eða geti frestað öðrum kostnaðarsömum framkvæmdum í flutningskerfinu. Ráðherra sagði núverandi fyrirkomulag valda því að fyrsti aðili sem tengist kerfinu geti þurft að bera óhóflega mikinn kostnað, þótt síðari notendur njóti einnig góðs af framkvæmdunum. Þetta kallaði hann „brautryðjandaóhagræði“. Framkvæmdir verði að veruleika Jóhann Páll sagðist viss um að breytingarnar myndu koma málinu miklu lengra. Þegar kjörtímabilinu lyki yrðu Hvalárvirkjun, Miðdalstengipunkturinn og aðrir tengdir raforkuinnviðir komnir á þann stað í ferlinu að enginn efist lengur um að framkvæmdirnar verði að veruleika. Ráðherra nefndi einnig að um 600 milljónir króna hefðu verið veittar til jarðhitaleitar, jarðhitanýtingar og varmadæluvæðingar á Vestfjörðum á kjörtímabilinu. Þá sagði hann frumvarp um jöfnun dreifikostnaðar hafa mikla þýðingu fyrir Vestfirðinga, enda myndi það lækka raforkureikning nánast allra íbúa fjórðungsins.
Orkumál Deilur um Hvalárvirkjun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Sjá meira