Samlokan á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júní 2026 14:15 Af færslum og ummælum á samfélagsmiðlum að dæma voru margir sem ráku upp stór augu í gær þegar röng verð voru merkt á hillur ýmissa verslana. Aðsend/Samkaup Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau.
Vífill Ingimarsson framkvæmdastjóri Samkaupa segir kerfisvilluna hafa komið upp við uppfærslu á tölvukerfi sem stýrir hilluverðmerkingum og að hún hafi haft áhrif á allar verslanir Samkaupa. Þá segir hann í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að villan hafi birst þannig að röng verð hafi birst á hilluverðmerkingum í verslunum Samkaupa en að „villan hafi eingöngu haft áhrif á hilluverðmerkingar en engin áhrif á verð á afgreiðslukössum, þar hafi verðin áfram verið rétt“. Aðsend Þá voru lítraflöskur af Coca Cola án sykurs verðmerktar á ríflega tvö þúsund og sjö hundruð krónur og Mills-kavíar í túbur á rétt rúmar fjögur þúsund og þrjú hundruð krónur. Vífill segir í svarinu að þau hafi orðið vör við villuna snemma morguns og að þá hafi „allt kapp verið lagt á að lagfæra hana og keyra inn nýja uppfærslu sem hafi tekið nokkrar klukkustundir að skila sér í allar verslanirnar,“ segir hann en tekur fram að einnig hafi verið settar fram merkingar í allar búðir til þess að láta viðskiptavini vita af villunni. „Starfsfólk í verslununum okkar reyndi eftir fremsta megni aðstoða viðskiptavini á meðan merkingar voru rangar,“ segir Vífill í svarinu og nýtir tækifærið til að biðja viðskiptavini afsökunar. „Við viljum nota tækifærið til að biðja okkar viðskiptavini afsökunar á þessu og þakka þeim fyrir skilninginn. Eins og í öllum okkar verkferlum förum við vel yfir hvað olli þessu til að reyna að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig.“
Verðlag Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri Sjá meira