Körfubolti

Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jalen Brunson er kominn í úrslitaeinvígið með Knicks.
Jalen Brunson er kominn í úrslitaeinvígið með Knicks.

Það er komið algjört körfuboltaæði í New York enda er körfuboltaliðið New York Knicks komið í lokaúrslit í fyrsta sinn í 27 ár.

Það hefur vakið athygli að inngangan niður í neðanjarðarlestarkerfið við Madison Square Garden hefur verið máluð í litum New York Knicks, bláum og appelsínugulum.

Úrslitaeinvígið gegn San Antonio Spurs hefst annað kvöld. En árið 1999 mættust þessi lið einmitt í úrslitaeinvíginu og þá vann Spurs 4-1 sigur og var Tim Duncan var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna.

Núna hefur Knicks fengið góða hvíld fyrir úrslitaeinvígið eftir 4-0 sigur á Cleveland Cavaliers í undanúrslitunum. Spurs fór aftur á móti í gegnum sjö leikja seríu gegn NBA-meisturunum í OKC.

New York Knicks hefur núna unnið 11 leiki í röð í úrslitakeppninni.

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×