Körfubolti

Steph Curry gerir risasamning við kín­verskt íþróttamerki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steph Curry í leik með Golden State Warriors.
Steph Curry í leik með Golden State Warriors. Ronald Martinez/Getty Images

Körfuboltastjarnan Stephen Curry hefur skrifað undir samstarfssamning við kínverska íþróttavöruframleiðandann Li-Ning.

Tólf ára samstarfi hans við bandaríska fyrirtækið Under Armour lauk á síðasta ári og hefur það legið fyrir undanfarna mánuði að Curry væri að fara í annað samstarf. BBC greinir frá.

Curry er einn þekktasti leikmaður NBA-deildarinnar og leikur með Golden State Warriors.

Samkvæmt samningnum mun Curry vinna með Li-Ning að þróun nýrra vara auk þess að koma á fót verslanakeðju undir merkjum Curry Brand í bæði Bandaríkjunum og Kína.

Fjárhæð samningsins hefur ekki verið gerð opinber en gera má ráð fyrir að um sé að ræða einn stærsta samning sögunnar hjá körfuboltamanni.

Samstarfið er talið stórt skref fyrir Li-Ning í þeirri vegferð fyrirtækisins að festa sig í sessi sem alþjóðlegt vörumerki.

Í myndskeiði sem Curry birti á vefsíðu sinni Thirty Ink sagði hann samstarfið munu hjálpa Li-Ning að styrkja stöðu sína á bandarískum markaði. Fyrirtækið rekur nú þegar meira en 7.000 verslanir víðs vegar um Asíu.

Curry fékk 300 milljónir dollara fyrir tólf ára samning sinn við Under Armour. Samkvæmt heimildum manna vestanhafs er samnigurinn við Li-Ning til tíu ára og fær Curry 1,2 milljarð dollara.

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×