Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2026 15:29 Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari og ráðgjafi stjórnvalda vegna almyrkvans, með Daníeli Svavarssyni, skrifstofustjóra á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu. Stjórnarráðið Stjórnvöld hafa opnað sérstaka upplýsingagátt um almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Þá hafa þau samið við Sævar Helga Bragason, vísindamiðlara, um ráðgjöf varðandi fræðslu um myrkvann og undirbúning stjórnvalda.
Von er á fjölda ferðamanna til landsins þegar almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá íslandi 12. ágúst. Reiknað er með álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila á meðan. Í upplýsingagáttinni sem stjórnvöld opnuðu á Íslandi.is í dag hafa verið teknar saman upplýsingar um hver sé best að fylgjast með sjónarspilinu, hvenær hann það verði og hvernig eigi að bera sig að við að fylgjast með honum á öruggan hátt. Þá verður þar að finna upplýsingar um hvort og hvar gripið verður til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar, að því er segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Upplýsingagátin er sögð verða uppfærð reglulega fram að almyrkvanum. Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði sér um safna upplýsingunum saman. Stjórnvöld hafa skrifað undir samning við Sævar Helga um að vera þeim til ráðgjafar varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning stjórnvalda fyrir hann. Sævar Helgi rekur jafnframt eigin upplýsingavef um almyrkvann. Höfuðborgarbúar hvattir til að halda sig heima Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru hvattir til þess að leggja sitt af mörkum til að takmarka umferð og stuðla að almannaöryggi með því að fylgjast með myrkvanum heima hjá sér. Almyrkvinn verður sjáanlegur frá vestanverðu landinu, frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík í tæp sex hundruð ár. Deildarmyrkvi á sólu sást frá Íslandi í mars árið 2015 og vakti mikla athygli. Nálgaðist hann að vera almyrkvi á Höfn og Neskaupsstað en í Reykjavík huldi tunglið 97,7 prósent skífu sólarinnar.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tunglið Ferðaþjónusta Sólin Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira