Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar 31. maí 2026 22:32 Það má færa rök fyrir því að leika í eða með hljómsveit endurspegli samskiptareglur samfélagsins – eða kannski öllu heldur hvernig þær ættu að virka. Hljómsveit er skipuð ólíkum hljóðfærahópum sem allir hafa sitt hlutverk, sína rödd. Þessu hlutverki er lýst í nótum sem hljóðfæraleikarar leika og til þess hafa þeir vissulega nokkurt frelsi. Það takmarkast þó af því hvað aðrir í hljómsveitinni eru að leika. Ef hver leikur með sínu nefi verður útkoman gróf og ósamstæð en ef allir vinna að sama markmiði og hlusta á hvað aðrir eru að leika myndast samhljómur. Þetta er eitt af því sem börnum er kennt að gera í tónlistarskólum – að hlusta. Langflest börn eru ekki send í tónlistarnám til þess að verða á endanum atvinnumenn í greininni, heldur til þess að þroskast sem einstaklingar. Það tekur tíma og þarf auðvitað bæði þolinmæði af hálfu nemenda (og foreldra). Svo er líka önnur mikilvæg lexía sem börn læra í tónlistarskólum: Til þess að ná árangri þarf bæði dugnað og þrautseigju. Nemendur læra að þeir uppskera eins og þeir sá og það er kannski mikilvægasta lexían sem þeir taka með sér út í lífið, hvað svo sem þeir kjósa á endanum að leggja fyrir sig. Í desember 2024 kom út skýrsla sem unnin var fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið um starfsemi tónlistarskóla á Íslandi. Í niðurstöðum kom meðal annars fram að gæði náms í tónlistarskólum væru almennt mikil og viðleitni kennara til þess að ná árangri með nemendum sínum væri eftirtektarverð. Af þessu leiddi að nemendur og foreldrar voru almennt ánægðir með starf skólanna. Hins vegar var einnig bent á að meðal áskorana væri að tryggja jafnt aðgengi að tónlistarnámi en samkvæmt úttektinni var langur biðlisti í tónlistarskóla og var hann hlutfallslega lengstur á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2025 skar Reykjavíkurborg niður fjárframlög til tónlistarnáms um 7%. Þá er ekki öll sagan sögð. Samtök tónlistarskóla í Reykjavík hafa reiknað úr að framlög borgarinnar til tónlistarskóla hafi dregist saman um tæp 27% frá 2012-2025 að teknu tilliti til fólksfjölgunar í borginni og niðurskurðar til málaflokksins. Raunar hafa forráðamenn tónlistarskóla í Reykjavík ítrekað lýst togstreitu í samstarfi við borgina og bent á að niðurskurður leiði bæði til lengri biðlista og verri þjónustu. Við þetta bætist nú sú stefna borgarinnar að hætta að greiða með nemendum í tónlistarskólum með færri en 150 nemendur haustið 2027. Rökin fyrir því eru að mynda færri og stærri einingar sem eiga að vera rekstrarlega „betri“. Það er hins vegar alkunna að „Excel-útreikningar“ taka sérstöðu aldrei með í reikninginn. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til þess að átta sig á því að krónískur niðurskurður til tónlistarnáms í Reykjavík leiðir af sér að færri pláss verða í boði auk þess sem skólagjöld hækka. Þetta mun á endanum valda því að tónlistarnám verður einungis raunhæfur kostur fyrir börn úr efnameiri fjölskyldum. Niðurskurður grefur þannig undan framtíð tónlistarnáms og um leið menningarstarfi og það versta er að raunverulegt tjón af þessum niðurskurði mun ekki að öllu leyti birtast fyrr en eftir einn til tvo áratugi. Ef þá á loks að taka á vandanum má gera ráð fyrir að jafnlangan tíma þurfi til þess að rétta að fullu úr kútnum. Árið 1955 kom bandaríski fiðluleikarinn Isaac Stern til Íslands og lék meðal annars fyrir nemendur og kennara Háskóla Íslands. Hann gaf allan ágóða af tónleikahaldi sínu hér á landi til skólans þar sem hann taldi að unga fólkið hefði „miklu hlutverki að gegna í framþróun tónlistar og allra mennta“ eins og sagði í frétt sem birtist af þessu tilefni. Þorkell Jóhannesson háskólarektor þakkaði fyrir gjöfina og gat þess um leið að „ekkert væri ungu fólki hollara, ekkert göfgaði það meira né laðaði til dýpsta skilnings á andlegum verðmætum, ekkert tengdi fastar fólk af ýmsum og sundurleitum þjóðernum og menningu en tónlistin, er talaði sameiginlegu tungumáli til allra. Hún væri afl sátta, vinsemdar og friðar í sundurtættum heimi vorra daga.“ Þessir menn hugsuðu stórt og ég hvet því Reykjavíkurborg til þess að hugsa stærra en gert hefur verið undanfarin ár þegar kemur að tónlistarnámi. Höfundur er sagnfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Tónlist Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar