Funduðu enn og aftur um Grænland Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. maí 2026 08:12 Koma Jeff Landry erindreka Bandaríkjanna til Grænlands gerði ekki mikið fyrir samningaviðræður að sögn Dana. Christian Klindt Soelbeck/AP Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur hittust í gær í Washington DC á leynilegum samningafundi um Grænland og samskipti ríkjanna en samkvæmt danska ríkisútvarpinu er um að ræða enn einn fundinn á þessu ári þar sem fulltrúarnir hittast til að ræða málefni landsins.
Í umfjöllun DR kemur fram að Jeppe Tranholm-Mikkelsen ráðuneytisstjóri danska utanríkisráðuneytisins hafi mætt til Bandaríkjanna síðdegis á miðvikudag en hann leiðir danska sendinefnd vegna viðræðnanna. Hann hafi fundað með Mininnguaq Kleist fulltrúa Grænlands og Mike Needham aðalsamningamanni Bandaríkjanna. Áður hefur komið fram að meðal þess sem rætt hafi verið rætt í fundarröð þremenninganna séu nýjar herstöðvar á Grænlandi. Samninganefndir hafi verið bjartsýnar á að ljúka samningaviðræðum í sumar en þeim muni líklega ekki ljúka fyrr en í haust. Erfiðast að fallast á kröfur um auðlindir DR segir að þeir geri atlögu að því að festa í sessi samning um framtíðarfyrirkomulag um Grænland. Samningamenn Danmerkur og Grænlands hafi gert bandarísku sendinefndinni það ítrekað ljóst að ekki stæði til að gefa eftir grænlenskt landssvæði til Bandaríkjanna en áður hefur komið fram að Bandaríkin hafi lagt til að herstöðvar þeirra í Grænlandi yrðu formlega skilgreindar sem yfirráðasvæði Bandaríkjanna, það er að segja hluti af Bandaríkjunum. Þannig segir DR að sömu áskoranir hafi blasað við danskri og grænlenskri sendinefnd í gær. Þar hafi verið rætt um herstöðvar Bandaríkjanna en líka aðgengi þeirra að mikilvægum auðlindum sem Grænland býr yfir líkt og sjaldgæfum jarðmálmum sem og að komið verði í veg fyrir að Kínverjar hafi aðgang að þeim auðlindum. Segir danska ríkisútvarpið að flókið yrði að hrinda slíku í framkvæmd, á huldu yrði hver myndi sjá um að annast fjárfestingareftirlit í landinu og ljóst yrði að væri það látið eftir Bandaríkjamönnum væri um að ræða afgerandi hluta af sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar sem Grænland afsalar sér. Þá er rifjað upp að Donald Trump hafi í engu gleymt kröfum sínum um yfirráð yfir Grænlandi, það hafi sést á nýlegri færslu hans á samfélagsmiðlum og að það þvælist fyrir samningum. Muni hann að endingu segja nei við samningi verði hann að engu, eðli málsins samkvæmt. Koma Jeff Landry sérstaks erindreka Bandaríkjanna til Grænlands hafi svo ekki heldur orðið til þess að liðka fyrir viðræðum sendinefndanna.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Danmörk Bandaríkin Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Sjá meira