„Ekki í lífshættu“ Agnar Már Másson skrifar 24. maí 2026 17:07 Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild. Vísir/Einar Lögreglan segir að maður hafi verið með hugsanleg merki um skotsár og fluttur særður af vettvangi eftir umfangsmikla lögregluaðgerð á Kársnesi. Hann sé ekki í lífshættu.
Að sögn sjónarvotta sem Vísir ræddi við fyrr í dag gekk maður vankaður og blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut síðdegis í dag með handklæði vafið um særða hönd. Maðurinn hafi sagst hafa verið skotinn í höndina og óskað eftir því að hringt yrði á sjúkrabíl. Í sömu götu stóð yfir umfangsmikil sérsveitaraðgerð, nánar tiltekið við Hafnarbraut 12, sem stendur enn yfir. Svæðið í kringum íbúðablokk þar var girt af. Myndskeið af vettvangi sýna karlmann – á miðjum aldri að því er virðist – leiddan niður stigagang í járnum. Elín Agnes Eide Kristínardóttir hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu staðfestir í samtali við Vísi að einn hafi verið handtekinn og annar fluttur á sjúkrahús „hugsanlega með ummerki um skotsár“. „Ekki í lífshættu,“ bætir hún við um hinn særða og segir enn fremur að vettvangur sé nú til rannsóknar. Agnes segir að tilkynningin hafi borist lögreglu upp úr hálf tvö. Enn eigi eftir að ræða við sjónarvotta. Rannsóknin sé á frumstigi. Íbúar á stigaganginum sem aðgerðin snýr að lýsa því einnig að hafa séð blóð á veggjum. Á myndum má sjá að sérsveitarmenn voru þungt vopnaðir.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira