Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 24. maí 2026 14:05 Frá lögregluaðgerðinni á Kársnesi. Vísir/Viktor Freyr Umfangsmikil sérsveitaraðgerð stendur yfir við Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi vegna „alvarlegs atviks“ að sögn lögreglu. Tveir sjúkraflutningabílar voru sendir á vettvang að sögn slökkviliðs. „Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Hildur Rún Björnsdóttir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagðist ekkert geta tjáð sig um málið þegar Vísir hafði samband, annað en að aðgerðin stæði enn yfir í húsabyggð á Kársnesi. Lögreglan hefur girt innganga blokkarinnar af.Vísir/Viktor Freyr Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, hefur staðfest við Vísi að sérsveitarmenn séu á staðnum. Varðstjóri slökkviliðsins segir við Vísi að tveir sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang að beiðni lögreglu. Sjónarvottur segir að lögregluaðgerðin sé við Hafnarbraut 12E. Búið er að girða af stórt svæði á Kársnesinu. Á myndskeiði sem Vísir hefur séð mátti sjá lögreglumann leggja niður merkimiða — að því er virðist fyrir sönnunargagnsnúmer — á stigagangi. Fréttin hefur verið uppfærð. Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Erlent Alelda bíll í Kópavogi Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Grunaður barnaníðingur gengur laus Innlent Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Erlent Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Innlent Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Innlent Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sjá meira
„Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Hildur Rún Björnsdóttir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagðist ekkert geta tjáð sig um málið þegar Vísir hafði samband, annað en að aðgerðin stæði enn yfir í húsabyggð á Kársnesi. Lögreglan hefur girt innganga blokkarinnar af.Vísir/Viktor Freyr Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, hefur staðfest við Vísi að sérsveitarmenn séu á staðnum. Varðstjóri slökkviliðsins segir við Vísi að tveir sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang að beiðni lögreglu. Sjónarvottur segir að lögregluaðgerðin sé við Hafnarbraut 12E. Búið er að girða af stórt svæði á Kársnesinu. Á myndskeiði sem Vísir hefur séð mátti sjá lögreglumann leggja niður merkimiða — að því er virðist fyrir sönnunargagnsnúmer — á stigagangi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Erlent Alelda bíll í Kópavogi Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Grunaður barnaníðingur gengur laus Innlent Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Erlent Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Innlent Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Innlent Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sjá meira