Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Samúel Karl Ólason skrifar 22. maí 2026 10:52 Egisto Ott var handtekinn árið 2024 en þá lýsti Karl Nehammer, þáverandi kanslari Austurríkis, málinu sem mikilli ógn gegn lýðræði ríksisins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Christian Bruna Maður sem var á árum áður háttsettur innan leyniþjónustu Austurríkis hefur verið dæmdur fyrir að njósna fyrir Rússa. Egisto Ott lak upplýsingum um blaðamenn og aðra andstæðinga stjórnvalda í Kreml til Moskvu og seldi fartölvur og síma í eigu austurríska ríkisins til Rússa. Þetta gerði Ott fyrir hönd annars austurrísks njósnara sem flúði til Rússlands.
Ott, sem er 63 ára gamall, hefur lýst yfir sakleysi sínu en hann var dæmdur til rúmlega fjögurra ára fangelsisvistar, samkvæmt frétt Reuters. Hann var þó sakfelldur í flestum ákæruliðum í vikunni en hann var meðal annars dæmdur fyrir að leita í gagnagrunnum lögreglunnar og annarra að upplýsingum um fólk sem yfirvöld í Rússlandi vildu koma höndum yfir. Þar á meðal eru Dmitry Senin, fyrrverandi starfsmaður leyniþjónustu Rússlands sem flúði til Svartfjallalands, og Christo Grozev, blaðamaður frá Búlgaríu, sem hefur meðal annars unnið með aðilum eins og Bellingcat að því að svipta hulunni af aðgerðum rússneskra njósnara á erlendri grundu. Grozev og Bellingcat sviptu til að mynda hulunni af rússnesku njósnurunum sem eitruðu fyrir Sergei Skripal og dóttur hans í Bretlandi árið 2018. Sjá einnig: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur Um er að ræða einhvern stærsta njósnaskandal ríkisins síðan fyrrverandi ofursti í austurríska hernum var árið 2020 einnig dæmdur fyrir að njósna fyrir hönd yfirvalda í Rússlandi. Í frétt BBC segir að Ott hafi ekki verið drifinn áfram af einhvers konar hugsjónum og að persónulegur hagnaður hafi verið helsta drifafl hans. Ott deildi upplýsingum með ótilgreindum Rússum og manni sem heitir Jan Marsalek en hann er einnig frá Austurríki og er talinn hafa njósnað fyrir Rússa um árabil og er mjög hátt á lista Interpol yfir eftirlýsta menn. Meðal annars mun hann hafa notað umsvif sín innan þýska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Wirecard til að hjálpa leyniþjónustum Rússlands að flytja fé með ólöglegum hætti og styðja þannig við leynilegar aðgerðir þeirra um heiminn allan. Marsalek var rekstrarstjóri Wirecard og var grunaður um að hafa stolið tveimur milljörðum dala af fyrirtækinu áður en það hrundi. Hann flúði á sínum til Belarús og var þaðan ekið til Moskvu. Sjá einnig: Flúði eftir fjársvik og nú talinn njósnari Rússa Ott mun hafa látið Marsalek fá heimilisfang Grozevs í Vínarborg en eftir það var brotist inn hjá honum. Grozev fluttist í kjölfarið úr landi. The jury went on to unanimously find him guilty ohln most of the 21 charges that the prosecution had indicted him on: including breach of the state secrecy law, bribery, and many others crimes. He was acquitted on a few minor points such as fraud. But the key outcome stands.— Christo Grozev (@christogrozev) May 20, 2026 Árið 2024, þegar verið var að rétta yfir hópi Búlgara sem sakaðir voru um að njósna þar í landi fyrir Rússa, kom fram við réttarhöldin að sá hópur hafði einnig starfað fyrir Marsalek. Leiðtogi hópsins hafði á einum tímapunkti rætt það við Marsalek að ræna eða myrða Grozev. Sjá einnig: Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Búlgararnir voru dæmdir sekir um njósnir í fyrra.
Austurríki Rússland Erlend sakamál Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira