Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. maí 2026 14:06 Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði og oddviti Framsóknar. Vísir/Vilhelm Valdimar Víðisson og bæjarfulltrúar Framsóknar hafna alfarið þeim fullyrðingum sem fram hafa komið um meintan trúnaðarbrest af hálfu Framsóknar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Greint var frá því fyrr í dag að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafi ákveðið að slíta viðræðum við Framsókn um meirihlutasamstarf vegna alvarlegs trúnaðarbrests. Þá sagðist oddviti Samfylkingar í samtali við Vísi einnig útiloka samstarf við flokkinn og sagði Samfylkingu hafa átt í þreifingum með Framsókn og Viðreisn og verið komin langt í þeim þreifingum þegar þeim hafi verið tilkynnt að Framsókn myndi fara í formlegar viðræður við Sjálfstæðisflokk. „Á þriðjudag fór fram símtal milli Valdimars Víðissonar og oddvita Sjálfstæðisflokksins þar sem komið var skýrt á framfæri að ekki væri unnt að komast lengra í viðræðum flokkanna að sinni. Við slíkar aðstæður er bæði eðlilegt og ábyrgt að forystumenn stjórnmálaflokka eigi óformleg samtöl við aðra flokka þar sem farið er yfir samstarfsfleti og málefni áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar um myndun meirihluta. Það er því miður að forysta Sjálfstæðisflokksins kjósi nú að stilla málum upp með þessum hætti,“ segir í tilkynningu frá Framsókn í Hafnarfirði. „Ásakanir um óheiðarleika og trúnaðarbrest eiga ekki við rök að styðjast. Þvert á móti er það alvarlegt þegar slíkar fullyrðingar eru settar fram í pólitískum tilgangi án þess að þær standist skoðun. Framsókn mun áfram nálgast viðræður um framtíð Hafnarfjarðar af heilindum, ábyrgð og virðingu fyrir niðurstöðu kjósenda.“
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Tengdar fréttir Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf í bænum vegna alvarlegs trúnaðarbrests. 21. maí 2026 11:51 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf í bænum vegna alvarlegs trúnaðarbrests. 21. maí 2026 11:51