Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 21. maí 2026 07:35 Raúl Castro er yngri bróðir Fídels og tók við af honum sem leiðtogi Kúbu á sínum tíma. AP Photo/Ramon Espinosa Bandarísk yfirvöld hafa ákært Raúl Castro fyrrverandi þjóðhöfðingja Kúbu fyrir samsæri um að drepa bandaríska ríkisborgara þegar tveimur flugvélum var grandað á milli Kúbu og Bandaríkjanna árið1996.
Dómsmálið gegn Castro og fimm öðrum Kúbverjum var þingfest fyrir bandarískum dómstólum í gær en flugvélarnar voru í eigu samtakanna Brothers to the Rescue sem eru samtök sem leitast við að bjarga fólki á hafi úti sem hefur reynt að flýja Kúbu. Kúbverski herinn skaut vélarnar niður og voru þrír Bandaríkjamenn innanborðs. Raúl Castro sem var þá yfirmaður hersins og varð síðar leiðtogi landsins er nú sakaður um drápin á mönnunum og sagði settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna Todd Blanche, að Bandaríkin gleymi ekki borgurum sínum. Castro, sem er bróðir byltingarleiðtogans Fídels, er nú orðinn níutíu og fjögurra ára að aldri og að mestu horfinn úr sviðsljósinu. Núverandi forseti Kúbu, Miguel Díaz-Canel, vísaði ásökununum á bug og kallaði þær pólitíska stæla sem væru án lagastoðar. Þrýstingur Bandaríkjamanna á Kúbu hefur aukist verulega síðan þeir réðust inn í Venesúela og handtóku Nicolás Maduro forseta og fluttu til Bandaríkjanna þar sem hann sætir ákæru. Í framhaldinu skrúfaðist nær algerlega fyrir olíuflutninga til Kúbu sem hefur gert eyjarskeggjum mjög erfitt fyrir síðustu mánuði.
Kúba Bandaríkin Tengdar fréttir Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna. 13. mars 2026 14:51 Segir Kúbu brátt munu falla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. 6. mars 2026 23:31 Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Bandaríska landhelgisgæslan hyggst ekki hindra för rússnesks olíuflutningaskips til Kúbu með langþráðar eldsneytisbirgðir þrátt fyrir nokkurra mánaða óformlegt hafnbann á olíuflutninga til landsins. 29. mars 2026 23:24 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Sjá meira
Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna. 13. mars 2026 14:51
Segir Kúbu brátt munu falla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. 6. mars 2026 23:31
Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Bandaríska landhelgisgæslan hyggst ekki hindra för rússnesks olíuflutningaskips til Kúbu með langþráðar eldsneytisbirgðir þrátt fyrir nokkurra mánaða óformlegt hafnbann á olíuflutninga til landsins. 29. mars 2026 23:24