Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Birgir Olgeirsson skrifar 19. maí 2026 13:29 Íris Helga í dómsal í síðustu viku. Vísir Karlmaðurinn sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintu umsáturseinelti Írisar Helgu Jónatansdóttur biðst nú afsökunar á aðkomu sinni að málinu. Hann neitar þó enn sök.
Maðurinn er ákærður fyrir hlutdeild í umsáturseinelti gagnvart sambýlisfólki, meðal annars með því að hafa makað saur á hurðarhúna heimilis og bíls fólksins. Hann neitaði sök þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær og hafnaði jafnframt bótakröfu sambýlisfólksins. Í afsökunarbeiðni mannsins sem fréttastofa hefur undir höndum segir hann að aðkoma sín hafi verið afmörkuð, en engu að síður röng og vanhugsuð. „Ég geri mér nú grein fyrir því að það sem ég gerði var hluti af stærra máli sem hefur valdið fólki sársauka, ótta og óþægindum,“ segir í yfirlýsingunni. Hann segist á þeim tíma hafa trúað röngum upplýsingum og talið sig vera að bregðast við fyrir manneskju sem hann taldi vera þolanda. „Ég lét spila með mig, en það breytir ekki ábyrgð minni eða dómgreindarleysi,“ segir maðurinn. Hann segist taka ábyrgð á sínum þætti og biður þau sem urðu fyrir þessu, og fjölskyldur þeirra, innilega fyrirgefningar. „Ég veit að ég á enga kröfu á fyrirgefningu þeirra. Ég get aðeins lýst yfir einlægri eftirsjá og harmað afleiðingar gjörða minna.“ Að sögn Lilju Margrétar Olsen, verjanda mannsins, skýrist neitun hans á sök af því að aðkoma hans að málinu uppfylli ekki skilyrði ákvæðis hegningarlaga um umsáturseinelti. „Menn geta ekki verið hlutdeildarmenn í broti sem þeir vita ekki að sé að eiga sér stað,“ segir Lilja Margrét. Lilja Margrét Olsen er verjandi mannsins. Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar. Hún hefur neitað sök. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu mannsins í heild sinni: „Ég vil biðja hlutaðeigandi afsökunar á minni aðkomu að máli sem nú er til meðferðar fyrir dómi og varðar umfangsmikið umsáturseinelti gegn saklausu fólki. Aðkoma mín að málinu var afmörkuð, en hún var engu að síður röng og vanhugsuð. Ég geri mér nú grein fyrir að það sem ég gerði var hluti af stærra máli sem hefur valdið fólki sársauka, ótta og óþægindum. Á þeim tíma trúði ég röngum upplýsingum og taldi mig vera að bregðast við fyrir manneskju sem ég taldi vera þolanda. Ég lét spila með mig, en það breytir ekki ábyrgð minni eða dómgreindarleysi. Mér þykir innilega leitt að hafa tekið þátt í þessu með nokkrum hætti. Ég tek ábyrgð á mínum þætti og bið þau sem urðu fyrir þessu, og fjölskyldur þeirra, innilega fyrirgefningar. Ég veit að ég á enga kröfu á fyrirgefningu þeirra. Ég get aðeins lýst yfir einlægri eftirsjá og harmað afleiðingar gjörða minna.“
Dómsmál Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Tengdar fréttir Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25