Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. maí 2026 21:09 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var á öðru sæti lista Samfylkingar. Vísir/vilhelm Nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur var strikað út 1.161 sinni á seðlum greiddum Samfylkingunni í Reykjavík sem nemur 9,12% atkvæða til Samfylkingar. Það hafði ekki áhrif á uppröðun listans.
Samkvæmt kosningalögum hefði vantað 113 útstrikanir í viðbót til að hún hefði fallið niður um sæti eða 0,88 prósentustig. Andað hefur köldu á milli Heiðu Bjargar borgarstjóra og flokksins í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Hún laut í lægra haldi fyrir Pétri Marteinssyni í oddvitaslagnum en ákvað að taka annað sætið. Síðan þá hefur hins vegar ýmislegt gengið á. Hún naut ekki mikils stuðnings borgarbúa sem borgarstjóri, hvort sem um jafnaðarfólk var að ræða eða kjósendur annarra flokka, ef marka má kannanir. Þegar fjallað var um athugasemdir starfsmanna borgarinnar við notkun hennar á innkaupakorti borgarstjóra vildi hún ekki svara því hvort hún teldi samherja hugsanlega reyna að koma höggi á hana. Sömuleiðis er kurr í grasrót flokksins sem er óánægð með meint framtaksleysi hennar í aðdraganda kosninganna. Samantekt um útstrikanir eða aðrar breytingar á framboðslista kjörinna aðalfulltrúa í borgarstjórn var birt á vef Reykjavíkurborgar í kvöld. Hún er þannig: A-listi, Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir - 10 Líf Magneudóttir -151 B-listi Framsóknarflokkurinn Einar Þorsteinsson - 34 C-listi Viðreisn Björg Magnúsdóttir - 62 Róbert Ragnarsson - 22 D-listi Sjálfstæðisflokkurinn Hildur Björnsdóttir - 40 Bjarni Eggerts Guðjónsson - 143 Brynjar Níelsson - 368 Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir - 28 Rúnar Freyr Gíslason - 147 Guðný María Jóhannsdóttir - 10 Albert Guðmundsson - 38 Bjarni Fritzson - 37 Sigrún Ásta Einarsdóttir - 10 M-listi Miðflokkurinn Ari Edwald - 77 Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir - 15 Lárus Sigurðsson - 14 S-listi Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands Pétur Hafliði Marteinsson - 150 Heiða Björg Hilmisdóttir - 1.161 Steinunn Guðjónsdóttir - 27 Skúli Helgason - 197 Stein Olav Romslo - 21 Útstrikanir eða breytingar höfðu ekki áhrif á úthlutun sæta.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfylkingin Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira