Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. maí 2026 17:06 Claudine Longet var þekktust fyrir að hafa skotið kærasta sinn, Spider Sabich, til bana árið 1976. Getty Franska söngkonan Claudine Longet, sem öðlaðist frægð í bandarísku sjónvarpi á sjöunda áratugnum, er látin, 84 ára að aldri. Tónlistarferill hennar féll í skuggann á umdeildu morðmáli þar sem Longet skaut kærasta sinn, skíðamanninn Vladimir Spider Sabich, til bana árið 1976. Longet hélt því fram að um slys hefði verið ræða og var dæmd fyrir manndráp af gáleysi.
Bryan Longet, frændi söngkonunnar, greindi frá andláti hennar á Instagram-síðu sinni fimmtudaginn 14. maí. Fréttaveitan AP fjallar um andlátið en dánarorsök hennar liggur ekki fyrir. „Jafnvel þó hún sé ekki lengur með okkur þá munu ljós hennar, elegans, hæfileikar og gæska lifa áfram með okkur gegnum minningar, tónlistm ljósmyndir og ástina sem hún lætur eftir sig,“ sagði Bryan um frænku sína. Longet fæddist 29. janúar í París og öðlaðist frægð fyrir leik sinn og söng í bandarísku sjónvarpi. Hún giftist bandaríska skemmtikraftinum Andy Williams árið 1961 og eignaðist með honum þrjú börn en þau skildu síðan árið 1975. Á þeim árum kom Longet reglulega fram í skemmtiþætti eiginmannsins, The Andy Williams Show, og ýmsum öðrum sjónvarpsþáttum ásamt því að gefa út fjölda vinsælla laga. Claudine Longet með eiginmanninum Andy Williams og börnum þeirra, Christian, Robert og Noelle.Getty Eftir að Longet skildi við Williams byrjaði hún með bandaríska Ólympíufaranum Vladimir „Spider“ Sabich og flutti inn með honum í alpakofa hans í Aspen í Colorado. Longet skaut Sabich í kviðinn á baðherbergi heimilisins þann 21. mars 1976 og lést hann af sárum sínum á leið á sjúkrahús, aðeins 31 árs gamall. Longet var í kjölfarið handtekin en hélt fram sakleysi sínu. Hún sagði byssuskotið hafa hlaupið af fyrir slysni þegar Sabich var að kenna henni á vopnið. Rannsókn málsins litaðist af vanhæfni lögreglu sem hafði hvorki heimild til að taka af henni blóðsýni né gera dagbók hennar upptæka. Í blóði hennar fundust ummerki um kókaín og í dagbókinni kom fram að samband þeirra hafði súrnað, þvert á það sem hún hafði haldið fram. Saksóknarar byggðu mál sitt á krufningu Sabich sem þeir töldu sýna að hann hefði staðið 1,8 metra frá henni, snúið baki í hana og verið að beygja sig niður þegar hún skaut hann. Longet var á endanum sakfelld fyrir manndráp af gáleysi, hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm, þrjátíu daga fangelsisvist og 250 dala sekt. Longet gerði 1,3 milljón dala sátt við fjölskyldu Sabich með því skilyrði að hún myndi ekki tjá sig um andlátið opinberlega. Ferli Longet lauk eftir þetta og hélt hún sig algjörlega fjarri sviðsljósinu. Málið varð gríðarlega umdeilt, gat af sér umdeildan SNL-skets og sömdu Rolling Stones lagið „Claudine“ við upptökur á Some Girls (1978) en það kom ekki út fyrr en í endurútgáfu plötunnar árið 2011. Longet giftist Ronald D. Austin árið 1985 en hann var lögfræðingur hennar í morðmálinu og voru þau gift fram á dauðadag hennar.
Andlát Bandaríkin Frakkland Hollywood Erlend sakamál Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira