Tíska og hönnun

Gellur elska hönnun

Magnús Jochum Pálsson skrifar
HönnunarMars fór fram með pompi og prakt í síðustu viku og var ýmislegt um að vera.
HönnunarMars fór fram með pompi og prakt í síðustu viku og var ýmislegt um að vera. Sunna Ben

HönnunarMars fór fram í síðustu viku og var dagskráin umfangsmikil með fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Áhugasamir gátu kynnt sér það helsta í íslenskri hönnun og farið á ilmtónleika, húsgagnasýningar, dansgjörning og ýmislegt annað.

Yfir hundrað og fimmtíu viðburðir fóru fram á Hönnunarmars sem stóð yfir frá 6. til 10. maí síðastliðinn. Hátíðin var sérstaklega umfangsmikil en tilgangur hennar er að vekja athygli á íslenskri hönnun. 

Vísir hefur fjallað þó nokkuð um hátíðina, glæsilega gusugleði á vegum Salún, veggmynd Kristjönu S. Williams sem túlkaði sögu íslenska þjóðbúningsins og sýningu hönnunarstúdíósin Óra sem voru með sýningu á Parliament Hotel við Austurvöll.

Hér að neðan má hins vegar sjá brot af hinum ýmsu viðburðum og sýningum sem fóru fram á hátíðinni í síðustu viku. Þar má sjá húsgögn frá Strik stúdíó, dansgjörning á vegum Suskin, ilmtónleika Fischersunds og Farmers Market, leirmuni Leirlistafélagsins og fleira skemmtilegt.

Suskin var með danssýningu í kringum nýja línu á töskunum sínum.Sunna Ben

Fischersund og Farmers Market með ilmtónleika.

Yljandi ilmtónleikar.Sunna Ben

Glæsilegur lampi frá Tobia og Hildiberg.Sunna Ben

Anna Þórunn var með sýningu í EpalSunna Ben

Eva Katrín og Steinunn eigendur Andrá ásamt Karólínu skartgripahönnuði með sýninguna Karolina Pieces.Sunna Ben

Anna Róshildur var hress og kát á HönnunarMars.Sunna Ben

Nýja línan frá Sóleyju Jóhannsdóttur, Daydreaming, vakti mikla lukkuSunna Ben

Andrea Ósk Magnúsdóttir var með myndavélina á lofti.Sunna Ben

Viktor Weisshappel við borð frá Strik Studio.Sunna Ben

Systurnar Ingibjörg og Sigurrós frá Fischersund.Sunna Ben

Listamaðurinn Ólafur og Hrefna frá Studio Fléttu.Sunna Ben

Helga Ólafsdóttir, stjórnandi HönnunarMars, flytur tölu.Sunna Ben

Dóra Júlía Agnarsdóttir, blaðamaður og plötusnúður, glæsileg að vanda.Sunna Ben

Ása Bríet Brattaberg, fatahönnuður, var meðal gesta.Sunna Ben

Pétur Geir, Anna Dröfn og Eva María.Sunna Ben

Nadía Áróra góð á því.Sunna Ben

Flöff á vegg.Sunna Ben

Signý Kolbeinsdóttir hjá Tulipop með góðri vinkonu.Sunna Ben

Órar voru með sýningu á fallegum mublum á Parliament hótelSunna Ben

Kvæðakórinn söng fyrir framan Norræna húsið.Sunna Ben





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.