Kvennakvöldin og íþróttastarf í Kópavogi Una María Óskarsdóttir skrifar 12. maí 2026 07:10 Um helgina voru glæsileg kvennakvöld HK og Breiðabliks haldin í Smáranum og í Kórnum. Öll umgjörð, skipulag og skemmtun var hreint aðdáunarverð í alla staði. Á þeim árum sem ég var formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs sótti ég þessi félög oftar heim. Þá stunduðu börnin mín íþróttir í þeim báðum og ég gengdi trúnaðarstöðum hjá Breiðablik, sem varaformaður frjálsíþróttadeildar og formaður skíðadeildar og stundaði reyndar knattspyrnu með HK-mömmum við mis góðan árangur. Kópavogur er næst stærsta sveitarfélag landsins og það skiptir íbúana mjög miklu máli að í bæjarfélaginu blómstri öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Ég dáðist að því hvað þessi hluti félagsstarfsins að halda kvennakvöld var vel undirbúinn, framkvæmt með mikilli reisn og glæsibrag. Það er gaman að koma á slíkar samkomur og tilgangurinn er auðvitað líka að skapa vettvang mæðra barnanna í félögunum til að koma saman og kynnast betur. Allt leiðir þetta til öflugra félagsstarfs til hagsbóta fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Þessar staðreyndir leiða huga minn líka að því hvað stuðningur stjórnenda bæjarins skiptir öll íþrótta- og tómstundafélög miklu máli. Fullnægjandi aðstaða til ástundunar þarf að vera til staðar og gerð að þörfum viðkomandi íþróttagreinar eða tómstundar. Mikil sjálfboðavinna fer fram í félögunum og mér finnst mikilvægt að starfið sé metið að verðleikum og að sveitarfélagið kappkosti að létta bæði félögunum og fjölskyldum verkið þannig að sem flestir geti tekið þátt og félögin geti sinnt starfi sínu vel. Því hvað er mikilvægara, en að börn og ungmenni leggi stund á íþrótt- eða tómstund og öðlist þar með aukið hreysti og leggi grunn að betri heilsu til æviloka. Lýðheilsa Kópavogsbúa byggir á starfi þessara félaga. Miðflokkurinn í Kópavogi vill veg og vanda íþrótta- og tómstundafélaga sem mestan. Við teljum að augu stjórnenda Kópavogs þurfi alltaf að vera á boltanum, þ.e. á endurbótum og uppbyggingu. Við viljum fjölgreinapassa, öflugan frístundabíl og góða æfingatíma sem skipulagðir eru í samræmi við stundaskrár. Börnin okkar eru framtíðin. Þess vegna skulum við forgangsraða framkvæmdum; við nýja stúku fyrir HK, við húsnæði fyrir siglingafélagið ÝMI, við aðstöðu fyrir GERPLU, við flóðlýsingu fyrir BREIÐABLIK og við byggingu sundlaugar í KÓRNUM. Hjá Miðflokknum í Kópavogi er fólk sem hefur þekkingu og reynslu sem skipta mun bæjarfélagið máli. Við stöndum við það sem við segjumst ætla að gera. Ég hvet þig til að setja X við M í komandi kosningum. Höfundur er uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur og skipar 7. sæti í lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Kópavogur Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Sjá meira