Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 27. október 2026 13:00 Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir að fylgjast jafn vel með skrifum mínum um menntamál og raun ber vitni. Það er ánægjulegt að hann skuli rifja upp ýmis mál sem ég hef lagt áherslu á í gegnum tíðina og benda á að menntamálaráðherra sé að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd. Fyrir það má auðvitað þakka ráðherranum. Ég hef stutt góðar hugmyndir í menntamálum og mun halda því áfram, óháð því hver situr í ráðherrastóli. Mér hafði reyndar ekki dottið í hug að stuðningur við umbætur fæli jafnframt í sér skyldu til að samþykkja allar ákvarðanir ráðherra. Þegar sjálfstæð skoðun veldur vonbrigðum Það er hins vegar athyglisvert að þingmaðurinn byrjar á að hrósa mér fyrir umbótatillögur en lýkur greininni á að efast um vilja minn til umbóta. Sú mótsögn segir líklega meira um málflutning hans en afstöðu mína. Helsta tilefni skrifanna virðast enda vera persónuleg vonbrigði hans með mig fremur en efnislegur ágreiningur um menntamál. Auðveldara að gera upp skoðanir en að lesa þær Það þarf talsvert hugmyndaflug til að túlka vangaveltur um umbætur sem andstöðu við breytingar. Í skrifum mínum hef ég kallað eftir raunverulegri endurskoðun á kennsluháttum, auknum gæðum skólastarfs og markvissum aðgerðum til að bæta námsárangur. Þar hef ég ekki síst lagt áherslu á að stjórnvöld horfist í augu við það sem rannsóknir og niðurstöður segja okkur um stöðu menntakerfisins. Þingmaðurinn hefði því haft af nægu efni að taka hefði hann kynnt sér þessa umfjöllun. Það er vissulega einfaldara að eigna öðrum skoðanir en að kynna sér þær. En af þingmanni má gera meiri kröfur. Þessi Trumpismi þingmannsins lýsir vanþekkingu hans. Þegar framkvæmdin er afgreidd sem aukaatriði Þingmaðurinn telur mig gera aukaatriði að aðalatriðum. Þar erum við ósammála. Þegar stjórnvöld boða breytingar sem skólar eiga að innleiða skiptir faglegur undirbúningur, skýrar leiðbeiningar og samráð verulegu máli. Það er auðvelt að tilkynna breytingar en ábyrgðin felst í að tryggja að þær skili árangri í skólastarfi. Nýtt námsmat eða ný tákn fyrir sömu einkunnir? Þá fullyrðir þingmaðurinn að unnið sé að nýju námsmati. Hér þarf að halda hugtökum til haga. Breyting á einkunnakvarða er ekki það sama og nýtt námsmat. Ég hef lengi kallað eftir skýrara, réttlátara og samræmdara námsmati. Sú afstaða hefur ekkert breyst. Ég geri hins vegar kröfu um að breytingarnar séu faglega undirbúnar og framkvæmdin skýr. Það væri ágæt byrjun á umræðu um námsmat að þingmaðurinn gerði greinarmun á námsmati og einkunnakvarða. Læra börn betur að lesa með tölustöfum? Þingmaðurinn bendir einnig á slaka stöðu drengja í lesskilningi. Það er alvarlegt mál sem kallar á markvissar aðgerðir. En hvernig á breyting úr bókstöfum í tölustafi að bæta lesskilning barna? Hvaða fagleg rök eða rannsóknir styðja þá tengingu? Ef lausnin á slökum lesskilningi væri fólgin í því að skipta um tákn á einkunnablaði væri vandinn sannarlega auðleystur. Ég hefði mun meiri áhuga á að heyra svör þingmannsins við þeim spurningum en að lesa vangaveltur hans um persónu mína. Vonbrigði þingmanns eru ekki verkefni skólanna Ég hef gagnrýnt það sem betur má fara í menntakerfinu óháð því hvaða stjórnmálaflokkur fer með völdin. Ég ætlast til þess að fólk kynni sér málin áður en það fullyrðir um þau og spyrji frekar en að gera öðrum upp skoðanir eins og þingmaðurinn gerir af áhugaverðum hroka við óbreyttan kennara og skólastjórnanda norður í landi. Ég biðst undan slíkum vinnubrögðum. Aftur, það er heldur þægileg leið í rökræðu að ákveða fyrst hvað öðrum finnst og gagnrýna þá síðan fyrir það. Þegar persónuleg gagnrýni kemur í stað málefnalegrar umræðu Ég ber enn virðingu fyrir þingmanninum og því mikilvæga embætti sem hann gegnir sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hann hefur hins vegar ekki reynslu af daglegu skólastarfi og sýnir takmarkaðan vilja til að kynna sér málin. Það útilokar hann auðvitað ekki frá umræðu um menntamál en ætti að hvetja til þess að hlusti á þau sem þekkja starfsemina af eigin raun. Þegar formaður fjárlaganefndar kýs að draga faglegan trúverðugleika minn sem skólamanns í efa fremur en að svara efnislegri gagnrýni minni tel ég það honum til minnkunar. Með því beinir hann athyglinni frá þeim mikilvægu verkefnum sem bíða íslensks menntakerfis. Ég hefði vænst þess að þingmaður í jafn ábyrgðarmikilli stöðu legði fremur sitt af mörkum til málefnalegrar umræðu um lausnir og umbætur í þágu barnanna. Ég þakka þingmanninum enn og aftur fyrir lesturinn. Þó ljóst sé að hann virðist fátt hafa lesið um aðkomu mína að menntamálum annað en fagleg gagnrýni á framgöngu menntamálaráðherra þessi misserin. Vonbrigði þingmannsins með mig eru honum sjálfsagt hugleikin en þau leysa engan vanda í íslensku menntakerfi. Ég legg til að hann beini næstu grein að menntun barnanna. Þar er ærinn efniviður og mun meiri þörf fyrir svör en skoðanir á mér. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Skóla- og menntamál Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun