Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Birgir Olgeirsson skrifar 11. maí 2026 13:50 Atvikið átti sér stað á fimmtudag en veist var að konunni með höggum og spörkum. Lögreglan hefur undir höndum myndbönd af atvikinu og einnig frásagnir vitna. Konan er með áverka á andliti og þá var rifið í hár hennar líkt. Lögregla rannsakar hóp ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára sem talin eru hafa ráðist á konu konu á fimmtugsaldri með höggum og spörkum í biðskýli í Mjóddinni í Reykjavík á fimmtudag. Lögregla segir hópinn áður hafa komið við sögu hjá lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni.
Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi í Kópavogi, segir lögreglu hafa undir höndum myndbönd af árásinni þar sem ungmennin sex, strákar og stelpur, veitast að konunni með höggum og spörkum og rífa í hár hennar eftir að til orðaskipta hafði komið þeirra á milli. Þá hefur lögregla einnig frásagnir vitna. Vísir hefur myndir af áverkum konunnar undir höndum en þar er hún með glóðurauga, áverka í hársverði og áverka á hálsi. Samkvæmt heimildum Vísis var áhald notað til að þrengja að öndunarvegi konunnar. Samkvæmt heimildum Vísis var áhald notað til að þrengja að öndunarvegi konunnar. Aðsend Barnavernd hefur verið kölluð til vegna aldurs ungmennanna en tveir úr hópnum voru sendir á meðferðarheimilið Stuðla vegna þess að þeir voru undir áhrifum vímuefna. Enn á því eftir að taka skýrslur af öllum úr hópnum en foreldrar barnanna verða einnig kallaðir til skýrslutöku. Vitni hafði samband við lögreglu vegna árásarinnar en konan sem varð fyrir árásinni hafði síðar samband við lögreglu og leitaði sér læknishjálpar. Sigrún segir líðan konunnar eftir atvikum góða en hún er með áverka á andliti og líkama eftir árásina.Sigrún segir hluta hópsins hafa áður komið við sögu hjá lögreglu vegna óspekta í Mjóddinni þar sem þau hafi verið með almenn leiðindi og dónaskap í garð þeirra sem eiga þar leið um.
Lögreglumál Mjódd Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira