Allt í skrúfunni fyrir HM: „Enginn viðburður“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. maí 2026 10:31 Landamærastefna Trumps hefur slæm áhrif á komandi heimsmeistaramót og loforð Infantino um 104 Ofurskálar stendur ekki undir sér. Alex Grimm/Getty Images Gianni Infantino, forseti FIFA, lofaði Bandaríkjunum „104 Ofurskálum“ þegar HM færi fram þar og í Kanada og Mexíkó í sumar. Þrátt fyrir að ágætlega hafi selst af miðum á komandi mót sjá hótel í Bandaríkjunum góða sem enga sölu af herbergjum og bókanir langt undir spám.
80 prósent hótela í níu af ellefu borgum Bandaríkjanna þar sem HM fer fram í sumar segja bókanir langt undir spám. Einhver þeirra lýsa komandi heimsmeistaramóti sem engum viðburði (e. non-event) samkvæmt könnun sambands bandarískra hótela, niðurstöður hverrar voru opinberaðar á mánudaginn var. Gianni Infantino lofaði gestgjafaborgum „104 Ofurskálum“ og vexti í línu við það á komandi heimsmeistaramóti. „Þetta var ekki satt þegar hann sagði það og ekki er það að fara rætast úr þessu,“ hefur Forbes eftir Jan Freitag, forstöðumanni markaðsgreiningar hjá CoStar, greiningarfyrirtæki í gistiheimilaiðnaðinum. Nearly 80% of U.S. hoteliers in 11 World Cup host cities say bookings are tracking below original forecasts, with some describing the tournament as a “non-event,” according to an American Hotel & Lodging Association (AHLA) survey of members released Monday.Read more:… pic.twitter.com/NIYulUYmi4— Forbes (@Forbes) May 5, 2026 Vegna strangrar landamæragæslu Bandaríkjastjórnar Donalds Trumps má búast við töluvert færri alþjóðlegum gestum en spár FIFA sögðu til um fyrir mót. Greining FIFA gerði ráð fyrir yfir 30 milljörðum bandaríkjadala inn í hagkerfi Bandaríkjanna vegna mótsins. Íbúar frá fjórum þátttökuþjóðum; Íran, Fílabeinsströndinni, Senegal og Haítí, er alfarið meinuð koma inn í landið og fá ekki vegabréfsáritun. Aðilar frá tólf þátttökuþjóðum til viðbótar þurfa að punga út 5 til 15 þúsund bandaríkjadölum í tryggingu áður en þeir koma til Bandaríkjanna. Auknar öryggiskröfur vegna landvistarleyfa og vegabréfsáritana í Bandaríkjunum hafa einnig skapað langa biðtíma og baklás í sendiráðum víða um heim. Það virðist sem margir geti ekki vænt þess að fá ferðaleyfi sitt til landsins afgreitt áður en mótið fer fram. Víða um heim var fólk hvatt til að sækja um landvistarleyfi árið 2024, tveimur árum fyrir mótið, en þá voru enn um 18 mánuðir þar til lægi fyrir hvaða þjóðir tækju þátt. Þrátt fyrir þetta hefur miðasala almennt gengið nokkuð vel. Fimm milljónir miða hafa verið seldir á leiki mótsins en hótelbókanir eru langt frá því að vera í samhengi við þann fjölda. Gera má ráð fyrir að stór hluti miðasölunnar séu aðilar sem hyggist selja miðana áfram. Enda var stór hluti þegar seldur upp á leiki áður en lá fyrir hvaða þjóðir myndu spila þá tilteknu leiki. Breyting á miðum og aukinn skattur FIFA FIFA hugðist taka á gróða utanaðkomandi aðila á endursölu miða með því að taka 15 prósent hlut af bæði söluaðila og kaupaðila við miða í endursölu. Það hefur hækkað miðaverð enn frekar. Verð á miðum hefur sætt töluverðri gagnrýni. Almennt hafa miðar í gegnum tíðina verið seldir í fjórum flokkum; flokkur 1 eru dýrustu miðarnir en flokkar 3 og 4 hafa verið hvað stærstur hluti miða sem almenningur með meðaltekjur getur fest kaup á. Miðum í flokki 3 og 4 hefur aftur á móti fækkað gríðarlega fyrir komandi mót og eru þau sæti aðeins um 20 prósent, og flest þau sæti lengst uppi í rjáfri eða úti í hornum á völlum mótsins. Hóteleigendur í Boston, Philadelphiu, San Francisco og Seattle segja bókanir ekki aðeins vera undir spám FIFA, heldur séu þær undir meðallagi fyrir hefðbundið sumar. Komandi heimsmeistaramót sé því „enginn viðburður“.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin FIFA Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjá meira