Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar 5. maí 2026 14:45 Það hefur lengi verið stefna hægri flokka í Reykjavík að selja eignir höfuðborgarinnar þar sem þau telja að borgin eigi ekki að vera í samkeppnisrekstri. Skiptir engu hvort þar sé um að ræða eignir með samfélagsleg verðmæti eða eignir með mikla tekjuberandi möguleika. Eitt dæmi er tillaga um sölu bílastæðahúsa borgarinnar sem var lögð fram í borgarstjórn í febrúar á síðasta ári af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Bílastæðasjóður sem er í eigu Reykjavíkurborgar rekur sjö bílastæðahús: Stjörnuport, Vitatorg, Kolaport, Vesturgötu, Traðarkot, Bergstaði og Ráðhúskjallarann. Alls eru 1.144 stæði í þessum sjö húsum. Verðlagningin er mjög lág í ofangreindum bílastæðahúsum í samanburði við aðra rekstraraðila bílastæðahúsa í miðborg Reykjavíkur. Þar getur munar mjög miklu og þumalputtareglan er að það kosti um einn þriðja af því sem það kostar að leggja undir Hörpu ef lagt er í þrjá klukkutíma og um einn fjórða ef lagt er undir Hafnartorgi/Reykjarstræti. Fyrir þá sem vinna eða búa í miðborginni og kaupa langtímastæði í bílastæðahúsum yrði viðbótarkostnaðurinn við það að Reykjavíkurhúsin færðu sig upp í markaðsverð þeirra einkareknu gríðarlegur. Þeim vill flokkurinn koma í hendur einkaaðila sem munu væntanlega reka húsin með umtalsvert aukinni arðsemiskröfu umfram það sem er í dag. Með öðrum orðum er nær öruggt að bílastæðin í viðkomandi húsum, sem þyrftu að mæta bæði væntingum nýrra eigenda um arðsemi og standa undir fjármagnskostnaði vegna kaupa á bílastæðahúsunum, yrðu dýrari fyrir borgarbúa. Samfylkingin stendur skýrt fyrir því að selja ekki bílastæðahús Reykjavíkurborgar, né aðrar eigur borgarinnar. Til þess að tryggja að þau verði áfram í samfélagslegri eigu og bjóði upp á hóflega verðlagningu þarf að setja X við S 16. maí næstkomandi. Höfundur skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Regína Ásvaldsdóttir Samfylkingin Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Það hefur lengi verið stefna hægri flokka í Reykjavík að selja eignir höfuðborgarinnar þar sem þau telja að borgin eigi ekki að vera í samkeppnisrekstri. Skiptir engu hvort þar sé um að ræða eignir með samfélagsleg verðmæti eða eignir með mikla tekjuberandi möguleika. Eitt dæmi er tillaga um sölu bílastæðahúsa borgarinnar sem var lögð fram í borgarstjórn í febrúar á síðasta ári af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Bílastæðasjóður sem er í eigu Reykjavíkurborgar rekur sjö bílastæðahús: Stjörnuport, Vitatorg, Kolaport, Vesturgötu, Traðarkot, Bergstaði og Ráðhúskjallarann. Alls eru 1.144 stæði í þessum sjö húsum. Verðlagningin er mjög lág í ofangreindum bílastæðahúsum í samanburði við aðra rekstraraðila bílastæðahúsa í miðborg Reykjavíkur. Þar getur munar mjög miklu og þumalputtareglan er að það kosti um einn þriðja af því sem það kostar að leggja undir Hörpu ef lagt er í þrjá klukkutíma og um einn fjórða ef lagt er undir Hafnartorgi/Reykjarstræti. Fyrir þá sem vinna eða búa í miðborginni og kaupa langtímastæði í bílastæðahúsum yrði viðbótarkostnaðurinn við það að Reykjavíkurhúsin færðu sig upp í markaðsverð þeirra einkareknu gríðarlegur. Þeim vill flokkurinn koma í hendur einkaaðila sem munu væntanlega reka húsin með umtalsvert aukinni arðsemiskröfu umfram það sem er í dag. Með öðrum orðum er nær öruggt að bílastæðin í viðkomandi húsum, sem þyrftu að mæta bæði væntingum nýrra eigenda um arðsemi og standa undir fjármagnskostnaði vegna kaupa á bílastæðahúsunum, yrðu dýrari fyrir borgarbúa. Samfylkingin stendur skýrt fyrir því að selja ekki bílastæðahús Reykjavíkurborgar, né aðrar eigur borgarinnar. Til þess að tryggja að þau verði áfram í samfélagslegri eigu og bjóði upp á hóflega verðlagningu þarf að setja X við S 16. maí næstkomandi. Höfundur skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar