Börnin sem flytja oft Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar 5. maí 2026 06:33 Á Íslandi hefur aldrei verið til heilbrigður leigumarkaður. Örugg langtímaleiga þar sem fólk getur byggt sér upp heimili og framtíð hefur staðið fáum til boða. Samt býr fjórða hvert barn á Íslandi í leiguhúsnæði og líklegt er að veruleiki þeirra margra séu tíðir flutningar með tilheyrandi róti og aðlögun að nýjum skóla. Ég held að flest séum við sammála um að þetta sé ekki góð staða. Við viljum að börn búi við stöðugleika og öryggi af því að þannig líður þeim vel og ná árangri í því sem þau taka sér fyrir hendur. Sem samfélag viljum við börnum allt fyrir bestu, en samt getum við ekki sameinast um að skapa þeim og foreldrum þeirra húsnæðisöryggi. Ofurtrú á markaðslausnir Upp úr aldamótum hurfu stjórnvöld, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, frá félagslegum lausnum á húsnæðismarkaði og lögðu þess í stað áherslu á að markaðurinn myndi tryggja öllum húsnæðisöryggi. Þetta leiddi til aukinna lánveitinga til húsnæðiskaupa, sem endaði með fasteignabólu sem sprakk í efnahagshruninu 2008. Tilraunin til að láta markaðinn sjá einan um málin var fljót að mistakast og ekki skánaði ástandið eftir hrun. Þetta varð til þess að almenna íbúðakerfið varð til í nýrri mynd árið 2015, í stað verkamannabústaða urðu til leigufélög sem njóta stofnframlaga frá ríki og sveitarfélögum og bjóða húsnæði til þeirra sem hafa minna milli handanna. Verkalýðshreyfingin stofnaði leigufélagið Bjarg sem býður vinnandi fólki með lágar tekjur öruggt heimili og er það stærsta sem starfar á þessum grundvelli. Öryggi og viðráðanlegt verð Bjarg hefur sýnt og sannað þörfina fyrir sína þjónustu. Munað getur 70-80 þúsund krónum á mánuði á leigu hjá þeim og á markaðsleigu, auk þess sem íbúar Bjargs segjast upplifa umtalsvert meira húsnæðisöryggi. Byggðar hafa verið um 1100 íbúðir og búa þar á þriðja þúsund manns en betur má ef duga skal. Uppbyggingin hefur ekki gengið alveg sem skyldi vegna þess að sum sveitarfélög draga lappirnar og hefur Kópavogur t.a.m. ekki úthlutað neinni lóð til uppbyggingar á vegum Bjargs. Reykjavík undir forystu Samfylkingar hefur leitt vagninn í þessum efnum. Vilja leiðir sem hafa mistekist Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er hins vegar afdráttarlaus í stefnu sinni um að hann hefur engan áhuga á að byggja fyrir alla tekjuhópa. Í stefnu flokksins nú fyrir kosningar kemur fram að þau vilji draga úr opinberum afskiptum af húsnæðisuppbyggingu, treysta markaðnum til að þróa lausnir og draga úr áherslu á niðurgreidd húsnæðisúrræði. Með öðrum orðum ætla þau aftur að láta markaðinn sjá um þessi mál – sem mistókst hrapalega síðast – og halda áfram að treysta á gömlu góðu séreignarstefnuna. Alveg burtséð frá því að hér hafa alltaf verið hópar vinnandi fólks í fullu starfi sem geta ekki keypt sér íbúð. En kannski skilur Sjálfstæðisflokkurinn ekki að það eru ekki allir með bakland sem getur hjálpað til við útborgun í íbúð. Á biðlista hjá Bjargi í dag eru um 3900 manns. Þetta er fólk á vinnumarkaði sem getur ekki keypt íbúð fyrir sig og börnin sín. Það þarf að mæta þessu fólki með alvöru lausnum. Óhagnaðardrifnu leigufélögin sýna að það er hægt að skapa húsnæðisöryggi á viðráðanlegu verði fyrir stóra hópa fólks. Okkar er valið Það er okkar val hvort við viljum búa fullorðnu fólki og börnum þann veruleika að vera upp á einstaka leigusala komna eða halda áfram að byggja upp heilbrigðan leigumarkað. Samfylkingin stendur með óhagnaðardrifinni uppbyggingu af því að við vitum að öruggt heimili er grundvöllur allrar velferðar. Það á ekki að skipta máli hvort foreldrar manns eru á leigumarkaði eða eiga húsnæði. Við viljum að öll börn geti notið þess að eiga sitt heimili, í sínu hverfi, nærri vinum og tómstundum. Þetta er jafnaðarstefnan í Reykjavík. Höfundur er frambjóðandi í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Samfylkingin Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar