Gætu endað í þyrlu til Eyja Sindri Sverrisson skrifar 30. apríl 2026 17:27 Viktor Karl Einarsson og félagar fá að ferðast til Vestmannaeyja um helgina en enn er óvíst hvernig. vísir/Diego Forráðamenn Breiðabliks eru með það til skoðunar að koma leikmönnum með þyrlu til Vestmannaeyja á sunnudag, fyrir leikinn við ÍBV í Bestu deild karla, vegna óvissunnar um samgöngur til Eyja.
Þetta staðfesti Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki, við Vísi í dag eftir að 433.is greindi fyrst frá því að Blikaliðið myndi ferðast með þyrlu. Eyjólfur segir það rangt að búið sé að ákveða að ferðast með þyrlu. Verið sé að skoða alla kosti en að í ljósi óvissunnar um ferjusamgöngur, þar sem fólk hafi jafnvel lent í því á undanförnum dögum að vera sex klukkutíma á leið frá Þorlákshöfn með Herjólfi, vilji Blikar hafa vaðið fyrir neðan sig. Til greina komi að fljúga með þyrlu eða flugvél. Staðan hefur þó batnað síðastliðinn sólarhring varðandi ferjumál. Landeyjahöfn er vissulega enn lokuð en vonir standa til þess að hún verði opnuð á næstunni, mögulega strax um helgina. Þá mun Breiðafjarðarferjan Baldur sigla á milli lands og Eyja á meðan að Landeyjahöfn er lokuð, til viðbótar við Herjólf sem farið hefur hægar yfir en ella síðustu tvær vikur vegna bilunar í annarri véla skipsins. „Það er ekkert staðfest. Við erum að reyna að koma okkur út til Eyja og erum að skoða alla möguleika,“ sagði Eyjólfur við Vísi nú síðdegis og benti á að dýpkun væri fyrirhuguð í Landeyjahöfn á morgun. Eyjólfur segir það ekki dýrara að ferðast með þyrlu í leikinn en að sigla og þurfa þá að gista í Vestmannaeyjum, eins og nauðsynlegt sé í núverandi ástandi. „Ef að við þurfum að fara frá Þorlákshöfn, getum þá ekki ferðast samdægurs og þurfum að gista, þá hleypur kostnaðurinn nánast á jöfnu við að ferðast samdægurs með þyrlu. Við erum að reyna að gera þetta eins skynsamlega og við getum, með sem minnstu raski fyrir leikmenn, en það er ekkert staðfest í þessu. Við erum að bíða eftir mælingum og vonandi bara betri samgöngum þarna á milli. Auðvitað væri best að taka bara bátinn á sunnudag, fram og til baka [frá Landeyjahöfn], en eins og staðan er núna þá er það mjög óljóst,“ sagði Eyjólfur. Áætlað er að leikur ÍBV og Breiðabliks á sunnudaginn hefjist klukkan 18 á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru með eitt stig eftir fjóra leiki en Blikar með átta stig.
Besta deild karla Breiðablik ÍBV Mest lesið Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Enski boltinn Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Handbolti FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Fótbolti Berglind Katla fer í skóla í New York Körfubolti Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti