Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. apríl 2026 06:35 Trump virðist í vígahug, gegn bandamönnum Bandaríkjanna. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi.
Trump hefur farið mikinn gegn Atlantshafsbandalaginu vegna tregðu Evrópuríkjanna við að koma Bandaríkjunum til aðstoðar í stríði þeirra gegn Íran. Rétt er að geta þess að Trump ráðfærði sig ekki við bandamenn áður en aðgerðir hófust né virðist hann vilja horfast í augu við að Nató er varnarbandalag. Forsetinn hefur undanfarið haft í hótunum við Evrópuríkin undir rós vegna meintra svika þeirra en leiða má líkur að því að færslu forsetans á Truth Social megi rekja til ummæla Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, sem sagði í vikunni að forysta Íran hefði „niðurlægt“ Bandaríkjamenn og væru að spila með þá. Fyrstu viðbrögð Trump voru að ásaka Merz um að hafa ekki vit á því sem hann væri að tala um. Þá sagði hann að Merz þætti greinilega í fínu lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. Þetta er lína sem Trump hefur áður kastað fram í reiði sinni, meðal annars gegn Leó páfa. Forsetinn sagði í byrjun aprílmánaðar að ráðmenn vestanhafs væru að íhuga það í fullri alvöru að draga Bandaríkin úr Nató vegna afstöðu bandamanna gagnvart hernaðaraðgerðunum gegn Íran. Til þess mun þó varla koma, þar sem lög sem samþykkt voru árið 2024 kveða á um að aðeins þingið eða tveir þriðjuhlutar öldungadeildarinnar geti tekið ákvörðun þar um. Trump getur hins vegar gripið til aðgerða á borð við að fækka í herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem telur nú um 68 þúsund manns. Þar af eru yfir 35.000 staðsettir í Þýskalandi.
Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Þýskaland Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Sjá meira