„Það er mikið verið að suða“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. apríl 2026 21:42 Frá einu ungmennaþingi Barnaheilla. Mynd úr safni. vísir/sigurjón Börn sem tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla segjast finna fyrir skýru bakslagi í kynjajafnrétti og upplifa töluverða pressu til að uppfylla úr sér gengnar staðalmyndir. Ofbeldi í nánum samböndum er gríðarlega algengt að mati forsvarsmanna Barnaheilla.
Niðurstöður ungmennaþinga Barnaheilla voru kynntar á sérstöku málþingi á Nauthóli í dag, Þingin fóru fram á sex stöðum víða um land á síðustu vikum og tóku fyrir ofbeldi meðal ungmenna í nánum samböndum. Forsvarsmenn Barnaheilla segja niðurstöðurnar og birtingarmyndir ofbeldis meðal ungmenna sláandi. „Ég held það hafi komið okkur einna mest á óvart hversu mikið ofbeldið virðist vera. Það var ítrekað á öllum þingunum að það væri mjög algengt að það væri ofbeldi í nánum samböndum,“ sagði Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Börnin kölluðu fyrst og fremst eftir fræðslu og forvörnum. Þau töluðu einnig um úrræðaleysi, úrræðaleysi fyrir þolendur og úrræðaleysi fyrir gerendur. Sérstaklega á landsbyggðinni,“ sagði Tótla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Um 300 nemendur tóku þátt í ungmennaþingum Barnaheilla. Margir voru sammála um að bakslag væri í kynjajafnrétti þar sem staðalmyndir kynjanna eru sýndar í dýrðarljóma á samfélagsmiðlum. Ungmenni finni fyrir pressu að uppfylla ákveðnar kröfur. „Ef þú ætlar að bera þig saman þá getur það haft mjög mikil áhrif. Ef þú ætlar að bera þig saman við aðrar færslur, líka allar þessar tilkynningar og svona,“ sagði Bergur Leó, sextán ára. „Maður heyrir alveg mikið frá vinkonum sínum. Miklu meira en maður gerir sér grein fyrir sem gerist á bak við tjöldin. Maður reynir oft að fegra þetta sjálfur en þetta er orðið svolítið mikið,“ sagði Aðalheiður Anna, átján ára. „Það er mikið verið að suða, mikið ofbeldi, nauðganir og mikið af neikvæðum hlutum. Það er mikilvægt að við fáum að tala um þetta hérna því við tengjum öll við þetta,“ sagði Rakel Sunna, sextán ára. Ýmsir töluðu um skort á samtölum um hvað sé eðlilegt í nánum samböndum. Svandís Anna Sigurðardóttir, verkefnastjóri Sjúkrar ástar hjá Stígamótum, segir suð eitt algengasta vandamálið. „Sá sem suðar nýtir ýmsar leiðir til að fara yfir mörkin og færa þau til og fá að lokum samþykki innan gæsalappa. Sá sem verður fyrir suðinu upplifir að hún hafi gefið eftir og eiginlega sagt já. Eins og þetta sé þeim að kenna þó svo að viðkomandi hafi farið yfir mörkin. Þeim líður þá illa og upplifa skömm.“
Kynferðisofbeldi Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Félagasamtök Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira