Viðskipti innlent

Berjaya kveður Reykja­vík Natura og Hilton Nordica

Eiður Þór Árnason skrifar
Reykjavík Natura.
Reykjavík Natura. aðsend

Íslandshótel munu taka við hótelrekstri í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

„Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna. 

Enn er óvissa með nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura. Davíð telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar.

Áður var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita, sem á húsnæðið, og Berjaya væri að renna út en fyrirtækið gæti nýtt sér forleigurétt.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×