Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Kristján Már Unnarsson skrifar 28. apríl 2026 21:20 Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur hefur rannsakað jarðhita á Grænlandi. Lýður Valberg Hitaveitur gætu orðið að veruleika á Grænlandi en jarðhiti finnst þar mun víðar en áður var talið. Búið er að kortleggja nærri fjögurhundruð heitavatnsuppsprettur í rannsókn sem grænlenskar og danskar vísindastofnanir standa á bak við í samstarfi við íslenska jarðvísindamenn.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir frá heitu lauginni í Uunartoq á Suður-Grænlandi sem er vinsæll ferðamannastaður. Laugin hefur raunar verið þekkt frá tímum Eiríks rauða en í fornri lýsingu kemur fram að norrænu mennirnir sem byggðu Grænland nýttu hana til baða. Heita laugin í Uunartoq á Suður-Grænlandi er 38 til 40 stiga heit. Víst þykir að þetta er sama laug sem í fornri lýsingu er sögð við Hrafnsfjörð. Nunnuklaustur var innar í firðinum. Vegna þessarar lýsingar hefur tekist að staðsetja helstu fjarðaheiti í Eystribyggð, en svo kallaðist aðalbyggð norrænna manna á Grænlandi.Guide to Greenland Fjörðurinn hét þá Hrafnsfjörður en í Grænlandslýsingu frá miðri 14. öld, sem kennd er við norskan prest, Ívar Bárðarson, er sagt frá laugunum. „Þær eru svo heitar á vetrum að enginn þolir að lauga sig. Á sumrum lauga margir sig í þeim og fá bót meina sinna.“ Fyrir utan þessa vinsælu náttúru baðlaug hefur Grænland í jarðhitaskilningi verið talið kalt. En núna hafa grænlenskar og danskar vísindastofnanir kortlagt 382 staði þar sem jarðhiti hefur fundist á Grænlandi. Flestar hitauppsprettur eru á Diskóeyju undan vesturströndinni og í kringum Scoresbysund á austurströndinni. Búið er að kortleggja 382 hitauppsprettur á Grænlandi í rannsókn sem Náttúrufræðistofnun Grænlands, Kaupmannahafnarháskóli og Jarðfræðistofnun Grænlands og Danmerkur standa á bak við með þátttöku íslenskra jarðvísindamanna.grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur stóð fyrir íslenskum rannsóknarleiðangri þangað árið 2022. „Þá fórum við þrír Íslendingar; ég, Árni Hjartarson og Finnbogi Óskarsson, að skoða jarðhitann sem er í mynni Scoresbysunds.“ Finnbogi Óskarsson tekur vatnssýni úr volgri laug. Efnahitalíkön meta djúphitann í henni yfir áttatíu gráður á celsius.Grímur Björnsson Það var vegna óskar frá heimamanni sem vildi fá íslenska sérfræðinga til að svara því hvort nýta mætti jarðhitann þar í hitaveitu fyrir þrjúhundruð manna þorp. „Og við fórum og urðum bara alveg steini lostnir hvað þetta er mikið og víða. Grænland er bara með heilmikinn forða af bæði köldu og heitu vatni sem kemur upp gegnum sprungur,“ segir Grímur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Jarðhitinn fannst stutt frá þorpinu. „Þetta er sem sagt bara í sjö kílómetra fjarlægð frá Ittoqqortoormiit í loftlínu. Íslendingar væru löngu búnir að byggja hitaveitu þarna.“ Og Grímur vonast til að nýting jarðhita geti stutt við grænlenskar byggðir. „Ég vona það. Þessi jarðhiti þarna í Ittoqqortoormiit hann er talinn út frá efnafræðinni vera trúlega yfir 80 stiga heitur á dýpi. Það er orðinn nógur hiti til að vera ekki bara með hitaveitu heldur líka rafmagn,“ segir jarðeðlisfræðingurinn. Frá Ittoqqortoormiit við Scoresbysund. Íbúar nýta meðal annars hvítabirni, eins og sjá má á skinninu sem verið er að þurrka ofan á skúrnum.Grímur Björnsson Þá kannaði jarðfræðingurinn Árni Hjartarson jarðhita á Diskóeyju. „Diskóeyjan er eiginlega mjög lítið könnuð ennþá utan þessarar vettvangskönnunar Árna Hjartarsonar. En þar er næsta víst að þar er örugglega hægt að búa til, þó það sé ekki nema einhverja jarðhitastaði, baðstaði fyrir ferðamenn og slíkt,“ segir Grímur Björnsson.
Grænland Jarðhiti Sundlaugar og baðlón Vísindi Norðurslóðir Tengdar fréttir Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15 Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15 Norræna byggðin á Grænlandi lét eftir sig glæsileg mannvirki Í Landnemunum á Stöð 2 verður fjallað um íslenska landnámið á Grænlandi og hinar fornu byggðir heimsóttar. 11. desember 2016 08:15 Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Þrettán þúsund hafa skrifað undir Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sjá meira
Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15
Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15
Norræna byggðin á Grænlandi lét eftir sig glæsileg mannvirki Í Landnemunum á Stöð 2 verður fjallað um íslenska landnámið á Grænlandi og hinar fornu byggðir heimsóttar. 11. desember 2016 08:15