Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Jakob Bjarnar skrifar 27. apríl 2026 11:41 Inga Sæland dregur ekki af sér í viðtali við Frosta Logason, segist til að mynda hneyksluð á gagnrýni sem Kristrún Frostadóttir mátti sæta fyrir að hafa haldið pítsu-partý og verið sökuð um að hafa látið Grindvíkinga mæta afgangi: „Þetta er bara svívirðilegt. Þetta er dónalegt og bara algjör yfirgangur. Ég var steinhissa á þessum viðbrögðum.“ vísir/vilhelm Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, setur skýr skilyrði fyrir mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu: Full og óafturkræf yfirráð yfir auðlindum. Samhliða hafnar hún harðlega þeirri stefnu að verja tugum milljarða í loftslagsaðgerðir og gagnrýnir alþjóðleg kerfi sem hún telur ósanngjörn gagnvart Íslandi.
Inga fór mikinn í nýju viðtali við Frosta Logason á efnisveitunni Brotkast. Í viðtalinu segir Inga að umræðan um aðildar- eða aðlögunarviðræður skipti í raun litlu máli – niðurstaðan ráði öllu. „Hvort sem það eru aðildarviðræður, aðlögunarviðræður eða hvað sem þetta heitir, þá er staðreyndin sú að í lok dags… ef við fáum ekki varanleg og óafturkræf yfirráð yfir okkar auðlindum þá er ekkert um að tala. Þjóðin okkar myndi aldrei samþykkja það.“ Hún segir jafnframt að þjóðin eigi lokaorðið og treystir henni til að hafna samningi sem gengur gegn hagsmunum landsins: „Þjóðin okkar á að eiga síðasta orðið. Ég treysti þjóðinni minni til þess að velja og hafna. Ég treysti þjóðinni minni til að láta ekki fíflast með sig.“ Vill umsókn formlega dregna til baka Inga gagnrýnir samt sem áður að aðildarumsókn Íslands að ESB hafi aldrei verið formlega afturkölluð. „Ég er búin að koma með frumvörp núna ítrekað… þar sem ég var að óska eftir því við Alþingi að þessi umsókn yrði formlega dregin til baka vegna þess að hún hefur ekki formlega verið dregin til baka heldur liggur hún í skúffu.“ Inga fer einnig hörðum orðum um ETS-kerfi Evrópusambandsins og áhrif þess á Ísland. „Við erum bara salt ill út í þetta. Ég er ekki sammála þessu. Ég vildi frekar segja mig úr öllu svona samkomulagi heldur en að ætla að fara til dæmis að rukka okkur um hitt og þetta.“ Hún segir kerfið sniðið að allt öðrum aðstæðum: „Þetta ETS-kerfi er fyrst og síðast byggt upp með það fyrir augum að reyna að koma flutningum í Evrópu á meginlandinu meira í þessi lestarkerfi… og við höfum ekki slíkt. Við erum bara með flug til og frá landinu.“ „Ég vil ekki setja tugi milljarða í loftslagsmál“ Ráðherrann hafnar einnig stórfelldum útgjöldum í loftslagsaðgerðir. „Ég vil til dæmis ekki að við séum að setja tugi milljarða á einhverjum árum í loftslagsmál. Nei, ég er bara ekki þar.“ Hún bendir á að Ísland mengi lítið í alþjóðlegum samanburði: „Við mengum hlutfallslega sennilega minnst í heiminum. En samt er verið að segja að hlutfallslega séum við að menga einna mest og ég næ ekki utan um þetta.“ Inga vill að Ísland nýti eigin auðlindir betur og horfir til Noregs sem fyrirmyndar. „Ég vil bara fara að bora eftir olíu… ég vil bara vera sjálfbær í olíu. Ég vil bara fá okkar hérna norska olíusjóð – nema hann verði bara íslenski olíusjóðurinn.“ Hneyksluð á viðbrögðum við „pizza-partýi“ Inga gagnrýnir einnig harðlega umræðu sem skapaðist þegar ráðherrar hittust óformlega heima hjá forsætisráðherra. „Ég hef bara í annan tíma ekki ímyndað mér neitt annað eins rugl og upphróp og falsfréttir… eins og maður sé kominn í stofufangelsi.“ Hún segir gagnrýnina ósanngjarna gagnvart forsætisráðherra: „Það er eins og hún eigi ekki börn… eins og hún sé bara ekki manneskja… þetta var svo ósanngjarnt.“ Og Inga bætir við: „Þetta er bara svívirðilegt. Þetta er dónalegt og bara algjör yfirgangur. Ég var steinhissa á þessum viðbrögðum.“ Þrátt fyrir skýran stefnumun milli flokka segir Inga samstarfið ganga vel. „Við erum ekkert að deila heila þó að við séum svona góðar vinkonur og vinnum vel saman… við vinnum eingöngu samkvæmt stjórnarsáttmálanum okkar.“
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hlaðvörp Evrópusambandið Loftslagsmál ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Sjá meira