Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 17:25 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm Mikill hitafundur fór fram í Smiðju Alþingis á föstudag þegar utanríkisráðherra mætti fyrir utanríkismálanefnd að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Stjórnarandstaðan segir fundinn vonbrigði en ráðherra segir hörkuna í umræðunni koma á óvart.
Á fundinum spurði Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra meðal annars út í forgangsrétt Evrópuréttar en á undan höfðu tveir þingmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar spurt um slíkt hið sama. „Við erum að tala um gríðarlega mikið framsal, er það svo, því ráðherra svaraði hvorugum sessunauta minna hér, er það svo að ráðherra ætlar að halda þessu leyndu hér, fyrir þjóðinni í aðdraganda kosninga?“ „Það er ekki hægt að saka fólk um að svara engu af því því líkar ekki við svörin,“ svaraði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á fundinum þá. Áður hafði hún sagt að í mögulegum aðildarviðræðum við ESB yrði samið um gildissvið Evrópuréttar. „Ég er ítrekað búin að segja það og það virðist engu skipta að það er um samningaviðræður að ræða, þetta er ekki afsal á fullveldi.“ Líkt og lesa má úr þessum samskiptum á fundinum var þingmönnum heitt í hamsi á fundinum í Smiðju en um 130 dagar eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram, þann 29. ágúst. Ráðherra segir í samtali við fréttastofu fundinn hafa verið fyrirsjáanlegan. Segir fundinn hafa verið fyrirsjáanlegan „Ég svaraði spurningum og sumum fannst ég ekki svara skýrt. Ég er alltaf að segja það sama og undirstrika það að þetta mál, þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um það hvort að Íslendingar vilji að við klárum samninga við Evrópusambandið, þetta snýst ekki um aðild, ekki um aðlögun eða neitt, þetta snýst einfaldlega um það hvort við eigum að klára samninga við Evrópusambandið og sjá hvað í þeim felst.“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ekki sáttir við svör ráðherra að fundi loknum. „Ég viðurkenni að ég varð fyrir gríðarlegum vonbrigðum, ég fór ekki yfir það allt saman, það voru rangfærslur, eins og til dæmis að við séum 2/3 hluta inni í Evrópusambandinu, það séu gjaldeyrishöft hjá lífeyrissjóðunum og svo margt fleira og hún svaraði ekki spurningum nefndarmanna,“ segir Guðlaugur Þór. Verður fyrirferðamikið næstu mánuði Búast má við því að málið verði fyrirferðamikið næstu vikur og mánuði. Og enn meira eftir að sveitarstjórnarkosningum lýkur 16. maí. „Allur þessi málatilbúnaður stjórnarinnar virðist snúast um það að það verði sem minnst umræða um málið. Alls ekki umræða um innihald og staðreyndir,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. Þorgerður Katrín segist hissa á því hve mikill hiti hafi þegar færst í umræðuna. „Ég er í fyrsta lagi pínu hissa á því að umræðan skuli vera svona hörð, því þetta er nákvæmlega sama upplegg og Sigmundur Davíð lagði upp með á sínum tíma og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, þannig ég er pínu hissa, mér finnst það vera pínu tvískinnungsháttur í þessu.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Alþingi Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira