Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar 22. apríl 2026 14:41 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fer mikinn í gagnrýni sinni á leikskólakerfið á Íslandi í undanfara sveitarstjórnarkosninga sem eru fram undan. Hún telur leikskólakerfið of dýrt í norrænum samanburði og að við séum að veita slökustu þjónustuna eftir fæðingarorlof. Hún segir nám leikskólakennara of langt og eitt leyfisbréf hafa verið mistök. Hildur segir að kaupmáttarleiðrétt laun leikskólakennara séu há í alþjóðlegum samanburði, að undirbúningstímar leikskólakennara séu fleiri hérlendis og fjöldi leikskólakennara á hvert barn sé meiri hérlendis. Að líkindum eiga flestar þessara fullyrðinga uppruna í varhugaverðum túlkunum á tölum sem finna má í skýrslu Eurodyce frá 2025. Að undanskilinni vísun í flæði á milli skólastiga. Þær tölur hefur einungis Félag leikskólakennara tekið saman og haldið utan um og þekkir því út og inn. Þegar þessar fullyrðingar eru skoðaðar nánar er ekki allt sem sýnist. Dýrt kerfi og slök þjónusta Þegar skoðaður er kostnaður við leikskólakerfið verður að hafa í huga um hvers konar kerfi um ræðir. Þegar kafað er ofan í Eurodyce-skýrsluna kemur í ljós að leikskólastiginu er víða skipt í tvennt, eins til þriggja ára og þriggja til fimm ára. Mikilvægt er að hafa í huga við allan samanburð að dvalartími, kostnaðarþátttaka og fleira getur verið ólíkt milli stiga og landa. Sem dæmi er í mörgum löndum kerfi þar sem leikskólar eru ekki eins og við þekkjum þá. Á það sérstaklega við um yngstu börnin. Það sem hefur mikil áhrif á kostnað er dvalartími barna í leikskólum. Það gefur augaleið að þegar meðaldvalartíminn er um 40 stundir á viku er það mun kostnaðarsamara í starfsmannahaldi en þar sem meðaldvalartíminn er 33 stundir á viku. Á Íslandi er langhæsti meðaldvalartími barna á Norðurlöndunum hvort sem horft er til eldri eða yngri barna í leikskólum eins og sjá má á þessari mynd. Er það slök þjónusta að bjóða upp á hæsta meðaldvalartíma sem þekkist á Norðurlöndunum? Er stemning fyrir því að lækka meðaldvalartíma á Íslandi niður í 33 klst. á viku? Það myndi draga verulega úr kostnaði. Þegar skoðað er hlutfall barna í leikskólum eftir aldri frá núll til þriggja ára og svo þriggja og eldri á Norðurlöndunum, teiknast upp eftirfarandi mynd. Fæðingarorlof á Íslandi er eitt ár svo gera má ráð fyrir því að mjög fá börn á Íslandi sæki leikskóla fyrir eins árs aldurinn. Á Íslandi eru svo 50 prósent eins árs barna í leikskóla og 94 prósent tveggja ára barna. Sú fullyrðing að við séum að veita slökustu þjónustuna á Norðurlöndunum eftir fæðingarorlof er því röng. Danmörk sker sig nokkuð úr enda sækja um 20 prósent barna yngri en 1 árs einhvers konar daggæsluúrræði sem við myndum aldrei flokka sem leikskóla. Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki Starf kennara í leikskólum er bæði flókið og krefjandi en einnig gríðarlega skemmtilegt. Við viljum hafa vel menntað fólk í störfum kennara í leikskólum. Það eru engin málefnaleg rök fyrir því að kennarar sem kenna minnsta fólkinu eigi að hafa minnstu menntunina. Það var árið 2008 að það var sett í lög að til að fá leyfisbréf til kennslu þurfi fimm ára meistaranám á háskólastigi. Það er þó þannig að eftir tveggja ára háskólanám í menntunarfræði, með áherslu á leikskólafræði, geta einstaklingar komið í KÍ og fengið starfsheitið aðstoðarleikskólakennari sem fylgir ákveðinni launaröðun. Þegar einstaklingar klára svo B.Ed í leikskólafræðum fá þeir nýtt starfsheiti og hærri launaröðun. Svo þegar búið er að klára meistaranámið og leyfisbréfið er í húsi fær fólk aftur nýtt starfsheiti og hærri launaröðun. Það er því ekki svo að launaröðun og starfsheiti nema, sem hefja nám í leikskólafræðum, breytist ekki meðan á náminu stendur. Það er því ákveðinn tröppugangur á leiðinni sem er jákvætt? Samkvæmt upplýsingum HÍ og HA útskrifuðust 128 úr meistaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu með áherslu á menntunarfræði leikskóla árið 2025. Ég spurði bestu vinkonu ykkar allra, ChatGPT, hversu margir hefðu útskrifast á Íslandi sem læknar og með meistarapróf í lögfræði þetta sama ár. Samkvæmt því útskrifuðust 60 læknar og á bilinu 85 til 100 lögfræðingar með meistarapróf. Þá er ég ekki að taka þá sem mennta sig erlendis í þessum þremur greinum. Séu þessar upplýsingar nærri lagi hvað aðrar greinar en leikskólafræði varðar er ekki annað hægt að segja en að meistaranám í menntunarfræði leikskóla sé mjög vinsælt og að einstaklingar setji ekki fyrir sig að mennta sig í leikskólafræðum. Það eru allar forsendur til að fjölga enn meira í þessum hópi. Við eigum öll að ráðast í það verkefni. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar og þau eigum við að nýta. Þannig aukum við gæði náms í leikskólum börnum til heilla. Leikskólinn er fyrir börn og þau eiga það besta skilið. Fásinna að stytta nám kennara OECD hefur sagt opinberlega að Ísland sé það land sem eigi að læra af þegar kemur að menntun kennara á leikskólastiginu. Fyrirmyndarlagasetning var ein helst ástæða þess að OECD mælti með að ISTP leiðtogafundurinn yrði haldinn á Íslandi. Það er því verulega dapurlegt að heyra fólk sem vill láta taka sig alvarlega í pólitík tala um það sem eina af lausnum að stytta nám leikskólakennara um 20 árum eftir að lenging námsins varð að veruleika. Það hefur vitaskuld ekkert land í heiminum stytt nám kennara enda er það fásinna og yrðum við að sjálfsögðu að athlægi á alþjóðlegum vettvangi ef einhver væri svo vitlaus að framkvæma þann gjörning. Önnur lönd og ríki horfa öfundaraugum á lagalegan ramma utan um menntun kennara í leikskólum á Íslandi og stefna flest ef ekki öll að því að innleiða íslenska rammann um menntun kennara á leikskólastiginu. Það sem gerir málið enn dapurlegra er þegar einstaklingar, sem sjálfir eru hámenntaðir, tala niður með þessum hætti menntun kennara í leikskólum. Í leikskólum fer fram nám barna. Faglegt starf í leikskólum snýst um að bregðast við þörfum barna sem eru afar margbreytilegar. Í starfinu eru gerðar miklar kröfur um faglega þekkingu og hæfni, svo tryggja megi að menntun, uppeldi og umönnun allra barna fari fram í samræmi við réttindi þeirra samkvæmt lögum. Það er bæði óumdeilt og lögbundið að eina „þjónustuhlutverk“ leikskóla snýr að börnum og felst í að tryggja þeim gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Við eigum að vera stolt af metnaðarfullri lagaumgjörð um menntun kennara á leikskólastiginu. Lagaumgjörð sem er til fyrirmyndar og önnur lönd stefna á að taka upp. Í næstu grein mun ég fjalla um eitt leyfisbréf, fjölda kennara á barn, undirbúningstíma og laun. Höfundur er formaður Félags leikskólakennara Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Freyr Gíslason Leikskólar Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun