„Við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. apríl 2026 12:32 Finnur Freyr Stefánsson undirbýr Valsliðið fyrir einvígi gegn deildarmeisturunum. Paweł/Vísir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, er spenntur fyrir því að kljást við öflugt lið Grindavíkur í undanúrslitum Bónus deildar karla. Hann ætlar ekki að nota lítinn hvíldartíma sem afsökun og segir Kára Jónsson vera kláran í slaginn.
Valur komst áfram í undanúrslit með sigri í oddaleik gegn Keflavík síðasta sunnudag. Grindavík hafði tryggt sér sæti í undanúrslitum mun fyrr, með 3-1 sigri í einvíginu gegn Njarðvík. „Það er stutt á milli leikja þannig að við höfum ekkert haft of mikinn tíma til að hugsa, en það getur líka verið bara jákvætt. Við erum spenntir að takast á við sterkt Grindavíkurlið,“ segir Finnur Freyr fyrir leik kvöldsins. Hvaða áhrif mun það hafa að þið fáið þrjá daga í hvíld en Grindavík fær átta daga hvíld? „Eflaust hefur það einhver áhrif en við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju. Við ætlum bara að vaða í þetta og teljum okkur vera á betri stað núna en við vorum fyrir þessa Keflavíkurseríu. Við mætum hvergi bangnir og vöðum á þetta.“ Valur og Keflavík fóru alla leið í oddaleik. Anton Brink/Vísir Erfitt að læra eitthvað af Njarðvík Njarðvík sýndi og sannaði í síðustu seríu að Grindavík er ekki ósigrandi á heimavelli, þó Grindavíkurliðið hafi verið það í allri deildarkeppninni í vetur. Finnur segir samt erfitt að bera seríurnar saman. „Ég held að það sé erfitt að taka of mikið út úr þeirri seríu, við og Njarðvík erum mjög ólík lið. Njarðvík gerði mjög vel á móti Grindavík á löngum köflum en við getum ekki spilað sömu varnaráherslur, við erum meira að fókusa á hvað við getum gert með okkar leikmenn.“ Hvað er það þá sem þið þurfið að framkalla? „Við þurfum að vörninni vel í gang á móti þessu sterka sóknarliði sem Grindavík er. Þeir eru með Óla Óla og fjóra háklassa erlenda leikmenn sem eru reyndir í deildinni. Við þurfum að finna leiðir til að hægja á þeim og gera hlutina erfiða fyrir þá. Svo er heimavöllur Grindavíkur mjög sterkur og erfitt að spila þar inni, við erum að fara inn í gin ljónsins.“ Kári Jónsson var ekki upp á sitt besta í síðasta leik. vísir/Diego Er Kári Jónsson heill heilsu? Leikstjórnandinn Kári Jónsson var hetja Vals í þriðja leiknum gegn Keflavík en í oddaleiknum átti hann erfitt uppdráttar. Kári virtist kveinka sér eitthvað og hélt um höndina en Finnur segir ekkert ama að. „Já hann hefur verið að skjóta boltanum illa en við vonum að þetta sé bara eitthvað smá slump sem hann er í. Keflavík gerði líka mjög vel á hann í síðustu seríu. En hann er heill og klár í slaginn, eins og allur leikmannahópurinn.“
Bónus-deild karla Valur UMF Grindavík Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira