KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. apríl 2026 09:00 Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, harmar stöðuna en hvetur KR-inga til að koma degi fyrr og njóta sín vel í Heimaey. Vísir Stuðningsmenn KR sem hugðust fara til Vestmannaeyja og sjá leik karlaliðs félagsins í fótbolta við ÍBV geta ekki farið í dagsferð á leikinn. Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru skertar sökum bilunar í Herjólfi og lokunar Landeyjahafnar.
Leikur ÍBV og KR er á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn næsta, og almennur frídagur flestra. Stuðningsmenn KR sáu einhverjir fyrir sér skemmtilega dagsferð til Eyja til að styðja sína menn sem hafa byrjað Bestu deildina af krafti. KR er efst í deildinni með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Vélarbilun er hins vegar í Herjólfi og þá er Landeyjahöfn lokuð. Skipið Baldur hefur sinnt ferðum til og frá Þorlákshöfn undanfarna daga og aðeins tvær ferðir eru farnar hvora leið á degi hverjum. Herjólfur siglir á fimmtudaginn kemur en er enn bilaður. Sú ferð tekur nærri fjórum klukkustundum og ljóst að fari Reykvíkingar um borð í fyrri ferð dagsins frá Þorlákshöfn klukkan 10:45 mæta þeir ekki í Heimaey fyrr en um klukkan 14:45. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og því ljóst að hann næst ekki. Einhverjar vonir stóðu til um að Landaeyjahöfn gæti opnað í þessari viku en svo verður ekki. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir miður að þessar óviðráðanlegu aðstæður hafi komið upp. „Þetta er leiðindamál. Því það er náttúrulega skemmtileg dagsferð að fara til Vestmannaeyja, kíkja á einn fótboltaleik og fara svo til baka samdægurs. Auðvitað viljum við hafa þetta eins og verið hefur yfirleitt, að þá er byrjað að sigla í Landeyjahöfn þegar Besta deildin byrjar. Leikirnir hafa oft verið vel sóttir, sérstaklega á góðviðrisdögum,“ segir Ólafur og bætir við: „En staðan er bara sú að enn er ófært til Landeyjahafnar og þar að auki er Herjólfur lengur á leiðinni vegna bilunar í skrúfubúnaði.“ Tveggja daga ferð fyrir einn leik Ætli stuðningsmenn KR að fara á leikinn þyrftu þeir því að koma sér til Eyja á miðvikudaginn, líkt og lið KR mun gera. Leikmenn og þjálfarateymi KR heldur til Eyja á miðvikudag og gistir þar yfir nótt fyrir leikinn. Ólafur hvetur KR-inga til að lengja fyrirhugaða dagsferð til Eyja. „Við verðum eiginlega að hvetja KR-ingana til að koma til Eyja á síðasta vetrardegi á miðvikudaginn. Að eiga hér góða kvöldstund og gíra sig upp fyrir leikinn á fimmtudaginn. Svo komast þeir með okkur upp á land eftir leik,“ segir Ólafur. Þetta er þá ekki í fyrsta skipti sem KR-ingar lenda í vandræðum en þeir urðu veðurtepptir í Vestmannaeyjum þegar liðin áttust þar við á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina á síðasta ári. „Það er orðin svolítil lenska að það er vandræðagangur þegar KR spilar. Síðast vorum við með heimaleik við þá á Þjóðhátíð í fyrra og þá féll síðasta ferð dagsins niður útaf aðstæðum í Landeyjahöfn. Þeir urðu að dvelja hér yfir nóttina og ég held að margir hafi nú fagnað í Dalnum. Þetta hefur ekki alltaf gengið vandræðalaust þegar KR-ingarnir koma en við viljum hafa KR-inga hér á Eyjunni og ég veit að þeir njóta sín vel hér á Heimaey,“ segir Ólafur léttur. KR-ingar hittast á Ljóninu í staðinn Það er þá stuðningsmönnum KR sem hugðu ferð til Eyja vonbrigði að komast ekki í dagsferðina. Þeir eru ekki margir sem hafa tök á því að leggja á sig tveggja daga ferð fyrir einn fótboltaleik. „Auðvitað er þetta skellur. Mótið hefur byrjað vel og stór hópur hafði áhuga á því að fylgja liðinu og styðja það til sigurs í Eyjum. Við verðum að láta okkur Rauða ljónið duga í þetta skiptið,“ segir Snorri Sigurðsson, formaður KR-klúbbsins í samtali við Vísi. Líkt og hann nefnir hyggjast stuðningsmenn því hittast saman á Rauða ljóninu við Eiðistorg upp úr hádeginu á fimmtudag og styðja liðið til sigurs úr fjarska. Leikur ÍBV og KR er klukkan 13:00 á fimmtudag. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland líkt og allir aðrir leikir í þriðju umferð Bestu deildarinnar. Leikirnir í 3. umferð Bestu deildar karla Miðvikudagur 22. apríl 18:00 Keflavík - Breiðablik (Sýn Sport Ísland 5) 18:00 ÍA - KA (Sýn Sport Ísland 4) Fimmtudagur 23. apríl 13:00 ÍBV - KR (Sýn Sport Ísland) 17:00 Þór Ak. - Fram (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Víkingur R. - Stjarnan (Sýn Sport Ísland) 19:15 Valur - FH (Sýn Sport Ísland 3) 21:05 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Vestmannaeyjar Samgöngur Herjólfur ÍBV KR Besta deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira