Herjólfur

Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“

Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp.

Innlent
Fréttamynd

Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Al­ger­lega ó­á­sættan­legt“

Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Innlent
Fréttamynd

Hér sést hvar jarð­göngin eiga að opnast á Heimaey

Stjórnarformaður félags um Vestmannaeyjagöng vonast til þess að hægt verði að aka í jarðgöngum til Eyja eftir tíu ár. Stefnt er á að rannsóknarboranir hefjist í vor. Félagið hefur boðað til kynningarfundar í Eyjum í kvöld um verkefnið.

Innlent
Fréttamynd

Herjólfur siglir í dag

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag samkvæmt áætlun. Fella þurfti niður síðustu tvær ferðir ferjunnar síðdegis í gær vegna „aðstæðna í höfninni“.

Innlent
Fréttamynd

Herjólfur siglir ekki meira í dag

Ófært er til Landeyjahafnar vegna aðstæðna í höfninni og falla því tvær síðustu ferðir Herjólfs niður í dag, klukkan 17 frá Vestmanneyjum og klukkan 18 frá Landeyjarhöfn.

Innlent
Fréttamynd

Beittu neyðarstöðvun til að forðast á­rekstur við Herjólf

Skipstjórnarmenn skemmtiferðaskipsins Seabourn Venture þurftu að beita neyðarstöðvun við útsiglingu frá Vestmannaeyjum í ágúst í fyrra þegar skipið mætti Herjólfi. Skipstjóri Herjólfs dró úr ferð og beygði inn í Klettsvík til að forðast árekstur. Þetta kemur fram í bókun Rannsóknarnefndar samgönguslysa en atvikið átti sér stað þann 29. ágúst í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Þörf á ítar­legri rann­sóknum vegna Vestmannaeyjaganga

Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag.

Innlent
Fréttamynd

Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar

Starfsfólk Herjólfs hefur ekki þurft að kvarta undan verkefnaleysi í sumar því það er nóg að gera alla daga við að flytja fólk á milli lands og eyja, ekki síst ferðamenn. Skipið fer átta ferðir á dag og er meira og minna alltaf fullt af fólki og bílum.

Innlent
Fréttamynd

Búa sig undir á­kvörðun um stærsta mann­virki Fær­eyja

Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára.

Erlent
Fréttamynd

„Ó­boð­leg staða“ í Vest­manna­eyjum

Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að samgöngur milli eyja og lands séu óboðlegar þessa stundina. Herjólfur III er að leysa Herjólf IV af á meðan sá síðarnefndi er í slipp. Herjólfur III er tvisvar búinn að bila í þessari viku.

Innlent
Fréttamynd

Gælu­dýr séu að drepast eftir ferðir í Herjólfi

Formaður dýravinafélagsins í Vestmannaeyjum segir dýravini tala fyrir daufum eyrum þegar kemur að auknu öryggi dýra í Herjólfi. Þau hafi undirbúið undirskriftalista sem 1.400 einstaklingar hafi nú þegar undirritað en dæmi séu um það að dýr hafi dáið vegna álags og kvíða eftir veru á bíladekki Herjólfs.

Innlent
Fréttamynd

Fær­eyingar segja nei takk við Herjólfi III

Færeyingar hafa stofnað undirskriftarlista þess efnis að fá annað skip en Herjólfur III til þess að sigla milli Þórshafnar og Suðureyjar á meðan ferjan Smyril fer í slipp. Ekki sé nægt pláss í Herjólfi til að hann leysi Smyril af.

Erlent
Fréttamynd

„Dagurinn gekk eins og vera ber“

Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir að óhappið sem varð í Vestmannaeyjahöfn í gær, þar sem ekjubrú Herjólfs laskaðist, hafi ekki haft áhrif á ferðir skipsins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Komust að samkomulagi um starfslok skipstjórans

Herjólfur hefur komist að samkomulagi um starfslok við skipstjóra sem hélt áfram að sigla Herjólfi eftir að atvinnuréttindi hans runnu út en mbl.is greinir frá þessu. Starfsmönnum var tilkynnt um málið í gær en skipstjórinn var upprunalega sendur í leyfi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er algjör dómgreindarbrestur“

„Við lítum málið alvarlegum augum,“ segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs um mál starfsmanns sem nýlega var lækkaður um tign úr yfirskipstjóra í skipstjóra eftir að athugasemd og kvörtun barst um óeðlileg vinnubrögð af hans hálfu. Lögreglurannsókn er hafin og skipstjórinn kominn í leyfi.

Innlent