Patrick Muldoon er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. apríl 2026 10:40 Patrick Muldoon og Denise Richards léku saman í Starship Troopers og deituðu á tíunda áratugnum. Muldoon lést sviplega á sunnudaginn eftir að hafa fengið hjartaáfall. Getty Bandaríski leikarinn og framleiðandinn Patrick Muldoon lést sviplega á sunnudaginn, 57 ára að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall. Muldoon er þekktastur fyrir leik sinn í sápuóperunum Days of Our Lives og Melrose Place og költklassíkinni Starship Troopers.
Bransamiðillinn Deadline greindi frá andláti hans. Muldoon fæddist í San Pedro í Kaliforníu 27. september 1968, lærði við USC í Los Angeles og spilaði þar fyrir ruðningslið skólans. Hann hóf leiklistarferil sinn í háskóla þegar hann lék í tveimur þáttum af grínseríunni Who’s the Boss? og skömmu eftir útskrift árið 1991 fékk hann hlutverk í gríðarvinsælu þáttunum Saved By the Bell og lék þar í þremur þáttum. Stóra tækifærið kom þegar Muldoon var ráðinn til að leika Austin Reed í sápuóperunni Days of Our Lives þar sem hann var í 496 þáttum, fyrst frá 1992 til 1995 og svo frá 2011 til 2012. Þá lék hann illmennið Richard Hart í seríum þrjú til fimm af Melrose Place sem margir Íslendingar fylgdust með á Stöð 2 á tíunda áratugnum. Muldoon lék einnig í fjölmörgum sjónvarpsmydum á tíunda áratugnum og upp úr aldamótum og þó nokkrum kvikmyndum, þar má nefna Starship Troopers (1997) eftir Paul Verhoeven. Síðasta kvikmyndin sem Muldoon lék í, glæpamyndin Dirty Hands, kemur út síðar á þessu ári. Síðustu tíu ár vann Muldoon sem framleiðandi og yfirframleiðandi og kom að gerð mynda á borð við The Card Counter (2021), Marlowe (2022), Riff Raff (2024) og Kockroach, með Chris Hemsworth, Taron Egerton og Zazie Beetz, sem er enn í framleiðslu. Muldoon var ætíð kallaður Bobo af vinum sínum og fjölskyldu en hann lætur eftir sig makann Miriam Rothbart, foreldrana Deönnu og Patrick eldri, systur og systrabörn.
Andlát Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira