Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar 17. apríl 2026 06:30 „Ég þarf bara einhvern þangað inn sem hlustar á bæjarbúa og gengur í verkin.“ Þetta heyri ég aftur og aftur í samtölum við Kópavogsbúa. Skilaboðin eru skýr: fólk vill bæjarfulltrúa sem hlusta - og ganga í verkin. Það er kjarninn í því sem Viðreisn í Kópavogi vill gera. Við viljum betra bæjarfélag þar sem almannahagsmunir ráða ferðinni, ekki sérhagsmunir. Of margir í Kópavogi upplifa að ákvarðanir séu teknar langt frá fólkinu. Foreldrar bíða eftir þjónustu. Ungar fjölskyldur flytja úr bænum. Kennarar starfa undir sívaxandi álagi og skorti á líkamlegu öryggi. Íbúar upplifa að skipulagsmál séu keyrð áfram án raunverulegs samráðs. Börn eiga ekki heima á biðlistum Börn eiga rétt á þjónustu þegar þörfin verður til. Sveitarfélag sem bregst of seint við er að velta kostnaði og álagi yfir á aðra, ekki bara foreldra heldur allt þeirra bakland og atvinnurekendur. Viðreisn vill grípa börnin snemma. Það léttir á fjölskyldum og gerir kennurum kleift að einbeita sér að kennslu. Þannig styttum við biðlista og verndum börnin. Leikskólar og almannahagsmunir Kópavogsmódelið þykir mörgum ágætt, svo langt sem það nær. Markmiðin eru góð, en framkvæmdin hefur stóra galla. Við innleiðingu þess var gripið til fjárhagslegra þvingunaraðgerða gagnvart barnafjölskyldum. Gjaldskrárhækkanir og skilyrði sem henta ekki öllum hafa leitt til þess að stór hópur foreldra upplifir sig ekki njóta góðs af breytingunum, þrátt fyrir að bera kostnaðinn. Það er ekki ásættanlegt að fjármagna umbætur í kerfinu með auknu álagi á barnafjölskyldur án raunverulegrar umræðu um áhrifin. Enn síður er ásættanlegt að líta fram hjá gagnrýni þeirra sem standa frammi fyrir afleiðingunum í daglegu lífi. Viðreisn vill viðhalda bættu starfsumhverfi og auknum stöðugleika í rekstri – og standa vörð um það sem hefur sannað sig. Hins vegar leggjum við áherslu á að leiðrétta það sem ekki virkar. Við boðum sanngjarnari gjaldtöku, meiri fyrirsjáanleika og raunverulegan vilja til að hlusta og bregðast við. Sterkt skólasamfélag Kennarar í Kópavogi hafa talað skýrt: álagið er of mikið og stuðningur ekki nægur. Hluti vandans er að börn með fjölþættan vanda fá ekki alltaf þau úrræði sem þau þurfa á réttum tíma. Of oft lenda þau á gráu svæði þar sem hvorki almennir skólar né núverandi stuðningskerfi ná að mæta þörfum þeirra. Þessu þarf að breyta. Við viljum tryggja aðgengi að sérskóla eða sértækum úrræðum í Kópavogi fyrir þennan hóp. Með því sláum við nokkrar flugur í einu höggi: styðjum betur við börnin sem þurfa aukna þjónustu, léttum álagi af kennurum og sköpum betra jafnvægi í skólastofum fyrir aðra nemendur. Samráð sem skiptir máli Samráð á ekki bara að vera samráðsins vegna. Það á ekki að vera friðþæging eða sýndarsamráð. Samráð á að vera leið fyrir bæjarbúa til að taka þátt fyrr í ferlinu og hafa raunveruleg áhrif á sitt nærumhverfi með opnum íbúafundum, kynningu mála á fyrri stigum og skýrum svörum við athugasemdum áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Kópavogur er öflugt sveitarfélag með mikla möguleika. En til þess að nýta þá þarf betri vinnubrögð, minni hægagang og meiri fagmennsku. Kópavogur þarf ekki fleiri loforð. Kópavogur þarf fólk sem hlustar - og gengur í verkin. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira
„