Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Björn Berg Gunnarsson skrifar 21. apríl 2026 07:02 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 44 ára kona spyr: Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð?
Það getur verið þægilegt að leita í smiðju Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Þar má nálgast áætlanir um rekstrarkostnað bifreiða og er sú nýjasta frá liðnu ári. Þar er hvorki gert ráð fyrir kílómetragjaldi, breyttu eldsneytisverði eða tímabundinni lækkun virðisaukaskatts, en ég tel samantekt þeirra þó gefa okkur nokkuð góða mynd af heildarkostnaði. Bílar eru dýrir Sambandið leggur fram sex ólík dæmi. Við skulum hér miða við það ódýrasta, en þar er litið á 3,9 milljóna króna bensínbíl, sem ekinn er 15.000 km. á ári. Heildarkostnaður er þá áætlaður um 1,6 milljónir króna ár hvert og það heggur að sjálfsögðu í möguleika þeirra á að safna sér fyrir íbúð, enda falla peningar almennt ekki af trjánum þegar við stundum háskólanám. Sparnaðurinn er mikill Í stað bíls gætu þau nýtt aðra fararmáta. Þar sem ég hef ekki upplýsingar um hve langt er fyrir þau í skóla og tómstundir þarf ég að geta í eyðurnar og við skulum reikna með að þau geti tekið strætó, en nýti sömuleiðis Hopp-hjól og einstaka leigubíl ef þörf er á. Árskort í Strætó kostar nemendur 58.000 kr. Hopp-hjól í 10 mínútur, tvisvar í viku, kostar sömuleiðis um 58.000 kr. á ári Leigubílaferð einu sinni í mánuði gæti kostað um 84.000 kr. á ári Saman gerir þetta 200.000 kr. Það væri því átta sinnum dýrara að eiga bíl en með þessu væru þau að spara um 1,4 milljónir króna á ári! Hverju myndi þetta muna? Gerum nú ráð fyrir að sparnaðurinn sé lagður fyrir í mánuði hverjum og beri 6% ávöxtun. Eins og sjá má er um verulegar fjárhæðir að ræða og draumurinn um að eiga fyrir útborgun í íbúð sannarlega innan seilingar. Til viðbótar við þessar fjárhæðir mætti bæta uppsöfnuðum og skattfrjálsum viðbótarlífeyrissparnaði og því sem lagt hefði verið fyrir ef ákveðið væri að festa kaup á bíl. Ef markmiðið er að safna fyrir 15% útborgun í 65 milljóna króna íbúð ætti samgöngusparnaðurinn í okkar dæmi að duga, einn og sér, til þess að festa megi kaup á íbúðinni á innan við 6 árum. Þetta tæki innan við 4 ár ef spara á fyrir 10% útborgun í 60 milljóna króna íbúð. Þar sem ég veit ekki hvert fjárhagslegt svigrúm þeirra er get ég ekki boðið þessar tvær sviðsmyndir saman og hversu mikið íbúðakaupin frestast vegna bílakaupa, en þarna munar væntanlega fjölmörgum árum. Bílar geta að sjálfsögðu verið þægilegt og jafnvel nauðsynlegt tól til að koma okkur á milli staða. En þeir eru almennt afleit fjárfesting og rándýrir í rekstri. Enn verri eru þeir ef tekið er lán fyrir kaupunum og því skaltu reyna hvað þú getur að passa upp á að engin bílalán séu tekin, kjósi þau að kaupa sér bíl.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Lánamál Bílar Tengdar fréttir Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? 76 ára karlmaður spyr: „Er ráðlegt að taka út af séreignasparnaði vissa fjárhæð mánaðarlega og setja á bankabók með föstum vöxtum og binda í 3-6-9-12 mánuði?“ 11. mars 2026 07:02 Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01 Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? 76 ára karlmaður spyr: „Er ráðlegt að taka út af séreignasparnaði vissa fjárhæð mánaðarlega og setja á bankabók með föstum vöxtum og binda í 3-6-9-12 mánuði?“ 11. mars 2026 07:02
Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01
Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02