Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Árni Sæberg skrifar 15. apríl 2026 13:07 Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í málinu klukkan 13. Vísir/Vilhelm Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að brot gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði. Níu mánuðir dómsins eru bundnir skilorði. Hann var ekki sakfelldur fyrir að nauðga drengnum heldur fyrir kynferðislega áreitni í hans garð.
Dómur þess efnis var kveðinn upp fyrir luktum dyrum í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 13. Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, greinir frá niðurstöðu málsins í samtali við Vísi. Hann hafði ekki farið yfir dóminn og gat því ekki greint frá öðru en dómsorði hans. Verjandi Helga Bjarts vildi ekki tjá sig um niðurstöðu dómsins. Samkvæmt heimildum Vísis var Helgi Bjartur sakfelldur fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni í garð drengsins. Helgi Bjartur sætti ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í september í fyrra með því að hafa við hann önnur kynferðismök en samræði og að reyna að hafa við hann samræði. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa greitt fyrir vændi í Bolholti í Reykjavík sama kvöld. Hann hafði gengið laus síðan hann var handtekinn grunaður um verknaðinn í september. Eftir að rannsókn lögreglu á málinu lauk í janúar ákvað Héraðssaksóknari að krefjast gæsluvarðhalds yfir Helga Bjarti. Héraðsdómur hafnaði beiðninni, sá ekki ástæðu til að færa hann í varðhald, en Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við. Helgi Bjartur hefur því sætt gæsluvarðhaldi frá 14. janúar. Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum um það sem Helgi Bjartur var sakfelldur fyrir.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Hafnarfjörður Dómsmál Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á heimili þess í Hafnarfirði í september í fyrra hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er einnig ákærður fyrir vændiskaup. 24. febrúar 2026 14:03 Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tíu ára dreng á heimili þess síðarnefnda í Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafði áður hafnað kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald. 14. janúar 2026 22:56 Kynferðisbrot gegn dreng í Hafnarfirði komið til saksóknara Mál karlmanns á fimmtugsaldri, sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, er komið á borð Héraðssaksóknara. 8. janúar 2026 13:31 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
„Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á heimili þess í Hafnarfirði í september í fyrra hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er einnig ákærður fyrir vændiskaup. 24. febrúar 2026 14:03
Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tíu ára dreng á heimili þess síðarnefnda í Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafði áður hafnað kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald. 14. janúar 2026 22:56
Kynferðisbrot gegn dreng í Hafnarfirði komið til saksóknara Mál karlmanns á fimmtugsaldri, sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, er komið á borð Héraðssaksóknara. 8. janúar 2026 13:31