Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. apríl 2026 12:07 J.K. Simmons og Jeff Daniels við tökur á The Brink of War við Höfða. Vísir/Vilhelm Kvikmyndin The Brink of War, sem fjallar um leiðtogafundinn í Höfða 11. og 12. október 1986 á hápunkti kalda stríðsins, verður frumsýnd í ágúst en ný stikla fyrir myndina kom út í gær. Þar má sjá Reagan og Gorbatsjov lifna við á tröppum Höfða.
Tökur myndarinnar fóru fram í og við Höfða og vöktu mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem Hollywood-mynd er tekin upp í Reykjavík. Sjá mátti frakkaklæddar stjörnur ganga inn og út úr byggingunni og leikara í leyniþjónustubúningum standa þar í kring. Sjá einnig: Hollywood-stjörnur við Höfða Leikstjóri myndarinnar er Michael Russell Gunn sem skrifar jafnframt handritið en hann lagðist víst í mikla rannsóknarvinnu á fundinum. Upphaflega stóð til að myndin myndi heita Reykjavík en titlinum virðist hafa verið breytt í hinn dramtíska The Brink of War. Jeff Daniels og Jared Harris fara með aðalhlutverkin í myndinni, Daniels leikur Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Harris leikur Mikhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, og svo fer J.K. Simmons með hlutverk George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Stiklan sem er æsispennandi sýnir frá komu leiðtoganna til landsins og fundum þeirra inni í Höfða. Á einum tímapunkti ræða Reagan og Schultz saman á tröppum Höfða og Reagan segir:. „Af öllum stöðum í heiminum valdirðu hús á Íslandi.“ „Fullkomið upp á öryggi,“ svarar Shultz. Fjöldi íslenskra leikara er í myndinni, Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur bandaríska ráðgjafann Richard Perle og svo í minni hlutverkum eru Einar Haraldsson, Tommi Thor Gudmundsson, Kristín Lea, Ari Freyr Ísfeld Óskarsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóel Sæmundsson, Alexander Briem, Dagur Þór Óskarsson, Stefán Þór Þorgeirsson, Sara Rut Arnardóttir, Jafet Máni Magnúsarson, Axel Ólafsson, Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Hrafn Ingason.
Bíó og sjónvarp Leiðtogafundurinn í Höfða Reykjavík Kalda stríðið Sovétríkin Bandaríkin Ronald Reagan Mest lesið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira