Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Árni Sæberg skrifar 13. apríl 2026 16:53 Ragnar Freyr hefur fengið uppsagnarbréf. Vísir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. „
Það var átakanlegt að hlýða á skýringar framkvæmdastjóra á uppsögn minni. Í þeim er ekki heil brú. Þar sem rökin voru engin læðist sá grunur að manni að það sé eitthvað gruggugt í farvatninu. Að einhver annarleg sjónarmið hafi ráðið för. Að staða mín sem formaður stéttarfélags hafi leikið hlutverk og að störf mín væru einskis metin,“ segir Ragnar Freyr í færslu á Facebook. Uppsögnin gagnrýnd Hann greindi frá því í síðustu viku að honum hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum. Hann var í nokkurra mánaða launalausu leyfi en starfaði annars í þrjátíu prósenta starfshlutfalli. Uppsögnin vakti mikla athygli enda hefur verið fjallað mikið um læknaskort á spítalanum. Þá var rætt við Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sem sá um uppsögnina. Hann sagði að best væri ef fólk væri í hærra starfshlutfalli og væri Ragnari velkomið að halda áfram að starfa á spítalanum tæki hann við áttatíu til hundrað prósenta starfi. Ragnar Freyr sagðist í kjölfarið ekkert boð hafa fengið um aukið starfshlutfall. Rökin fallin niður Nú segir Ragnar Freyr að honum hafi vissulega verið boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og við það væru upphaflega uppgefin rök um að verið væri að leggja starf hans niður vegna aðhaldskröfu fallin um sjálf sig. „Það boð get ég vitaskuld ekki þegið þar sem ég hef jafnframt aðrar skyldur - síðasta áratug hef ég rekið stofu þar sem ég ber ábyrgð á meðferð þúsunda einstaklinga og síðustu tvö og hálft ár hef ég verið formaður Læknafélags Reykjavíkur - sem er stéttarfélag. Þeim skyldum gengur maður ekki frá svo gjörla. Og kannski er leikurinn til þess gerður - að opna dyr sem ómögulegt er fyrir mig að stíga í gegnum. Ég hefði glaður haldið óbreyttri stöðu líkt og ég hef oft nefnt áður. Ég trúði vart eigin eyrum. Um lögmæti þessa gjörnings verður látið á reyna.“
Landspítalinn Mannauðsmál Heilbrigðismál Vinnumarkaður Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira