Skoraði 103 stig í körfuboltaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2026 06:32 Bandarískir háskólar keppast nú við að bjóða hinum átján ára gamla Nantti Ruuhilahti skólastyrk. @driveacademyelite Bandarískir háskólar keppast nú við að bjóða finnskum körfuboltastrák gull og græna skóga og nýjasta frammistaða hans mun aðeins auka áhugann.
Hinn átján ára gamli Nantti Ruuhilahti skoraði 103 stig í finnsku U19-deildinni í körfubolta þegar lið hans, WB-Pantterit frá Helsinki, vann ótrúlegan 186–77 sigur á BC Nokia. Samkvæmt finnska blaðinu Yle er talið að frammistaða Ruuhilahti á dögunum hafi slegið öll fyrri stigamet í finnskum körfuboltadeildum, bæði í yngri flokkum og meistaraflokki. Hann fór stuttlega yfir leikinn í viðtali við Yle og hrósaði liðsfélögum sínum fyrir frammistöðuna. „Það voru margar stoðsendingar og mikil liðsvinna. Ég varð bara sjóðheitur. Skotin duttu vel. Þannig komu 103 stigin. Maður getur aldrei búist við því að skotin detti svona. Þegar fyrstu 23 stigin voru komin fór mér að finnast að há stigatala væri möguleg,“ sagði Ruuhilahti. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport) „Þegar ég var kominn með 68 stig í hálfleik ákváðum við að reyna að ná 100,“ bætti Ruuhilahti við. Ruuhilahti spilaði rúmar 33 mínútur í leiknum. Hann tók 55 tveggja stiga skot og hitti úr 39 þeirra. Hann hitti einnig úr 3 af 4 þriggja stiga skotum. Þar að auki setti hann niður 16 vítaskot af 23 tilraunum. Hann tók einnig átta fráköst, stal fimm boltum og gaf tvær stoðsendingar. Ruuhilahti skoraði 23 stig á aðeins fyrstu fjórum og hálfu mínútunni. Fyrir þennan leik hafði besta frammistaða hans í einum leik í finnsku U19-deildinni á þessu tímabili verið 33 stig. Ruuhilahti hefur þegar fengið tilboð frá mörgum háskólaliðum, þar á meðal South Carolina og Drake en hann útskrifast ekki fyrr en vorið 2027.
Körfubolti Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira