„Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. mars 2026 09:47 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er sjónvarpskokkur með meiru. Vísir/Vilhelm „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina,“ skrifar Eva Laufey Kjaran í einlægri færslu á Facebook. Hún er sterkari en nokkru sinni áður og æfir sig í að sleppa tökum á tölunni á vigtinni þar sem kröfur samfélagsins séu óraunhæfar.
Eva Laufey, sem er þáttastjórnandi Ísskápastríðs og markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaupa, greinir frá því að hún fór í mælingu fyrir skömmu og mælist í yfirþyngd samkvæmt BMI-stuðlinum. Eftir mælinguna hafi hún verið mjög hugsi þar sem líðan hennar segir allt annað en stuðullinn. „Ég er sterkari en ég hef nokkru sinni verið. Ég hreyfi mig að minnsta kosti fjórum sinnum í viku, oft oftar. Markmiðið er ekki að grennast heldur til að líða vel. Ég get hlaupið 20 km+, farið í fjallgöngu og lyft lóðum. Ég er í mínu besta formi og finn fyrir mikilli orku og ég finn hvað ég styrkist með hverri æfingu,“ skrifar Eva Laufey. Undanfarið ár hafi hún sleppt tökum á tölunni á skalanum. Hún borði fjölbreyttan mat en segist aldrei ætla að sleppa því að fá sér köku og gotterí enda virki boð og bönn ekki fyrir hana. „Kannski tengist þetta minni eigin reynslu. Ég man vel eftir mælingunum í skólanum þegar við fengum miða með þyngdinni okkar. Ég kveð alltaf fyrir og var oft þyngri en aðrar stelpur. Ég fékk stundum að heyra að ég væri „of þung“ eða „stórbeinótt“. Ég er bara þannig gerð, það er gott í mér pundið. En sem barn fóru þessar tölur og orð beint inn í sálina.“ Mikilvægara að vera heilbrigður og sterkur heldur en að grennast Eva Laufey á í dag þrjár stelpur og segist oft hugsa um þetta í því samhengi þar sem kröfur samfélagsins séu oftar en ekki óraunhæfar. Henni finnst frekar mikilvægt að dæturnar heyri að þær borði allan mat, hreyfi sig til að vera heilbrigðar og sterkar í stað þess að grennast og að tölurnar segi ekki alla söguna. „Ég hef eytt of mörgum árum í að láta kg-töluna hafa of mikið vægi. Í dag vel ég frekar að horfa á styrk og vellíðan sem minn mælikvarða. Það er auðvitað nauðsynlegt fyrir okkur öll að huga að heilsunni og ég er ekki að segja að við eigum að loka augunum fyrir mælingum, frekar horfa líka á aðra þætti sem skipta máli,“ segir Eva Laufey. Hún lýkur færslunni á að greina frá plönum helgarinnar, helgarbakstri og helgarhlaupinu.
Heilsa Heilbrigðismál Ástin og lífið Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira