Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 28. mars 2026 23:41 Hútar hafa í fyrsta sinn frá upphafi stríðs Íran, Ísraels og Bandaríkjanna stigið inn í átökin. AP Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum.
Í yfirlýsingu á Telegram segir talsmaðurinn, Yahya Saree, að árásirnar hafi heppnast vel. Þá boðar hann frekari árásir næstu daga, eða þar til andstæðingurinn láti af árásum og yfirgangssemi. Árásir dagsins eru þær fyrstu síðan átök milli Írana, Ísraela og Bandaríkjamanna hófust fyrir mánuði síðan. Saree sagði í yfirlýsingu á dögunum að Hútar væru með „fingurinn á gikknum“. Ekki liggur fyrir hvort Ísraelum hafi tekist að skjóta niður eldflaugarnar og drónana í seinni árásinni. Fréttavakt AP hefur eftir talsmanni Ísraelshers að herinn hafi þegar búið sig undir afskipti Húta af stríðinu. Fyrir árásir Húta sagði Marcio Rubio að Bandaríkjaher léti að öllum líkindum af árásum á Íran innan nokkurra vikna, þrátt fyrir að hafa aukið við hernað í landinu síðustu daga. Hóta að skjóta á háskóla Í umfjöllun Reuters segir að Masoud Pezeshkian, forseti Íran, fundi með utanríkisráðherrum Tyrklands og Sádi-Arabíu á morgun í von um að draga úr spennu á svæðinu. Þó bendir ekkert til þess að diplómatísk lausn sé í sjónmáli. Í yfirlýsingu sem íranski byltingarvörðurinn sendi frá sér í kvöld hótar hann að gera loftárásir á ísraelska og bandaríska háskóla í Mið-Austurlöndum vegna árása Ísraelshers á tvo háskóla í Teheran undanfarna daga. Fram kemur að hver og einn háskóli á svæðinu sé lögmætt skotmark þangað til tveir háskólar verði fyrir loftárásum. Talsmenn Ísraelshers sögðu herinn hafa gert fjölda árása á mannvirki í eigu klerkastjórnarinnar í Teheran í dag. Þá gerði herinn umfangsmiklar loftárásir á Líbanon, þar sem Ísraelar hafa endurvakið stríð á hendur Hezbollah-samtökunum. Þrír líbanskir blaðamenn féllu í árásunum en gerð var önnur árás á hjálparstarfsfólk sem mætti á staðinn til að koma þeim sem særðust í fyrri árásinni til bjargar. Reuters hefur eftir Ísraelsher að árásin hafi beinst að einum blaðamannanna, sem sé hryðjuverkamaður með tengsl við Hezbollah.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Ísrael Jemen Bandaríkin Líbanon Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira