Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 08:34 Leikskólinn er sex deilda og opnaði í fyrra. Vísir/Vilhelm Leikskólabarn strauk af leikskólanum Áshamri í Hafnarfirði og gekk sjálft heim til sín. Árdís Ármannsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að strax hafi verið gripið til úrbóta. Barnið hafi farið yfir lágar girðingar á lóðinni sem hafi verið til staðar vegna framkvæmda. Atvikið átti sér stað á miðvikudaginn, þann 25. mars. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði barnið verið úti að leika þegar það fór af leikskólanum og svo heim til sín. „Starfsfólk brást fljótt við, barnið var komið á leikskólann aftur stuttu seinna og innan við 30 mínútum síðar var verktaki lóðar búinn að fjarlægja lágar girðingar af lóðinni sem reyndust orsakavaldurinn,“ segir Árdís í skriflegu svari til fréttastofu um málið. Hún segir foreldra barnsins hafa verið meðvitaða og upplýsta en að ekki hafi þótt ástæða til að upplýsa aðra foreldra þar sem gripið hafi verið strax til úrbóta. Nítjándi leikskólinn Leikskólinn Áshamar er við Áshamar 9 í jaðri Hamrahverfis í Hafnarfirði. Samkvæmt heimasíðu bæjarins er rekstrarleyfi fyrir 120 börn. Á vef HMS má sjá að leikskólinn var byggður í fyrra og er sex deilda. Hann er 19. leikskóli bæjarfélagsins og er lögð sérstök áhersla á útikennslu samkvæmt heimasíðu bæjarins. Álíka atvik átti sér stað í fyrra þegar barn ráfaði af leikskóla í Garðabæ og í Bónus. Þar var hringt á lögreglu eftir að nágranni barnsins sá það og lét foreldra vita. Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Hafnarfjörður Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira
Atvikið átti sér stað á miðvikudaginn, þann 25. mars. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði barnið verið úti að leika þegar það fór af leikskólanum og svo heim til sín. „Starfsfólk brást fljótt við, barnið var komið á leikskólann aftur stuttu seinna og innan við 30 mínútum síðar var verktaki lóðar búinn að fjarlægja lágar girðingar af lóðinni sem reyndust orsakavaldurinn,“ segir Árdís í skriflegu svari til fréttastofu um málið. Hún segir foreldra barnsins hafa verið meðvitaða og upplýsta en að ekki hafi þótt ástæða til að upplýsa aðra foreldra þar sem gripið hafi verið strax til úrbóta. Nítjándi leikskólinn Leikskólinn Áshamar er við Áshamar 9 í jaðri Hamrahverfis í Hafnarfirði. Samkvæmt heimasíðu bæjarins er rekstrarleyfi fyrir 120 börn. Á vef HMS má sjá að leikskólinn var byggður í fyrra og er sex deilda. Hann er 19. leikskóli bæjarfélagsins og er lögð sérstök áhersla á útikennslu samkvæmt heimasíðu bæjarins. Álíka atvik átti sér stað í fyrra þegar barn ráfaði af leikskóla í Garðabæ og í Bónus. Þar var hringt á lögreglu eftir að nágranni barnsins sá það og lét foreldra vita. Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Hafnarfjörður Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira