Brotist undan þöggun - Endósamtökin 20 ára Silja Steinunnardóttir og Lilja Guðmundsdóttir skrifa 26. mars 2026 12:32 Endósamtökin fagna tuttugu ára afmæli sínu á þessu ári. Á þeim tímamótum er hollt að líta um öxl og skoða hvað hefur áunnist og hver veruleiki fólks með endómetríósu er í dag. Í stuttu máli má segja að fólk með endó hafi á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá stofnun samtakanna, brotist undan þöggun og gaslýsingu. Samtökin hafa vaxið og eflst og knúið fram mörg þau framfaraskref sem orðið hafa í heilbrigðisþjónustu á þessum tíma. Stofnun Endósamtakanna Árið 2006 þegar Samtök kvenna með endómetríósu voru stofnuð vissi almenningur og stór hluti heilbrigðisstarfsfólks ekki hvað endómetríósa var, auk þess sem það var algjört tabú að tala opinberlega um blæðingar. Konur með endómetríósu voru ítrekað gaslýstar sem birtist m.a. í því viðhorfi að eðlilegt væri að sumar konur hefðu mjög slæma tíðaverki. Konur og kvár með sjúkdóminn þjáðust í þögn. Reynir Tómas Geirsson kvensjúkdómalæknir vildi bregðast við erfiðum veruleika endósjúklinga og hafði hann frumkvæði að því að samtökin voru stofnuð. Með aðstoð Auðar Smith kvensjúkdómalæknis setti hann sig í samband við nokkrar endókonur sem svo mynduðu fyrstu stjórn samtakanna. Fyrstu skref í átt til vitundarvakningar um sjúkdóminn voru stigin á upphafsárum samtakanna en engu að síður einkenndust þau af harki; reksturinn var þungur, áhugi fjölmiðla og almennings takmarkaður og litlu munaði að samtökin legðust af. Umræðan opnuð Árið 2012 varð mikill viðsnúningur þegar ný stjórn stóð fyrir fyrstu Endóvikunni sem vakti töluverða athygli í fjölmiðlum. Á næstu árum var miklum krafti hleypt í starfsemi samtakanna og áhersla lögð á vitundarvakningu í fjölmiðlum og fræðslu. Á þeim tíma treystu samt fáar stjórnarkonur sér til að tala opinberlega um sjúkdóminn. Það sama átti við um almenna félaga í samtökunum, svo mikið tabú var umræða um blæðingar og endómetríósu. Árið 2019 voru enn konur í stjórn sem vildu ekki koma fram undir nafni, svo sterk var þöggunin og skömmin. Sem betur fer er þetta gjörbreytt í dag. Fjölmargir hafa komið fram í viðtölum á síðustu árum og ungar konur og kvár í dag langflest opin fyrir því að tjá sig um sjúkdóminn og tilbúin til að skreyta sig með varningi samtakanna. Þau neita því að endómetríósa sé eitthvað til að skammast sín fyrir. Fjölbreytt starfsemi samtakanna Í gegnum árin hafa Endósamtökin staðið fyrir alþjóðlegum ráðstefnum, fjölmörgum málþingum, hvatningargöngu, herferðum tengdum vitundarvakningu o.fl. Samtökin urðu aðilar að ÖBI réttindasamtökum árið 2018. Árið 2021 var Elsusjóður, menntasjóður endókvenna stofnaður, fræðslumynd samtakanna: Tölum um endó, var frumsýnd árið 2024 og sýnd á RÚV 2025 og það sama ár hófst fræðsluátak um sjúkdóminn í grunn- og framhaldsskólum. Endósamtökin í dag Á síðustu árum hefur rödd Endósamtakanna orðið sterkari og stofnanir og samtök leita í auknum mæli eftir áliti og samstarfi við þau. Starf samtakanna er í stöðugum vexti sem endurspeglast m.a. í fjölgun félaga og því að samtökin halda úti skrifstofu með tveimur starfsmönnum í hlutastarfi. Boðið er upp á hópastarf fyrir félagsfólk, einstaklingsviðtöl, reglubundin fræðsluerindi og eru samtökin mjög lifandi á samfélagsmiðlum. Mikilvægi samtakanna hefur samt hvað sterkast komið fram í baráttunni fyrir bættri heilbrigðisþjónustu. Hvað hefur áunnist? En hvað hefur áunnist í heilbrigðiskerfinu á þessum 20 árum? Stærstu framfaraskrefin voru stofnun endóteymis Landspítalans árið 2017 og þegar byrjað var að framkvæma aðgerðir vegna endómetríósu á Klíníkinni árið 2021. Tilkoma endóteymisins svaraði ákalli endósjúklinga um aðkomu fleiri sérfræðinga en kvensjúkdómalækna að þeirra heilbrigðisþjónustu. Í teyminu er í dag boðið upp á eftirlit hjúkrunarfræðings og aðkomu annarra sérfræðilækna eins og meltingarfæraskurðlækna og þvagfæraskurðlækna að flóknari aðgerðum, auk sérhæfðra kvenheilsusjúkraþjálfara og þjónustu sálfræðinga. Baráttunni ekki lokið Þó mikilvægt starf eigi sér stað innan endóteymisins, mætti verulega bæta við fjármagni og mannauði til að teymið geti veitt endósjúklingum öfluga göngudeildarþjónustu og verið betur í stakk búið til að sinna flóknari tilfellum. Enn er skortur á eftirfylgni við sjúklinga og aðgengi fólks í bráðaverkjakasti að teyminu er takmarkaður. Full ástæða er til að halda áfram uppbyggingu sérhæfðs teymis um endómetríósu enda er sjúkdómurinn flókinn fjölkerfasjúkdómur sem margir telja að ætti í raun að vera sérstök sérgrein. Samtökin beittu sér árið 2022 fyrir því að aðgerðir á Klíníkinni yrðu niðurgreiddar og það markmið náðist árið 2023. Hins vegar hefur orðið bið á langtímasamningum og fyrirsjáanleika í þjónustu við sjúklingahópinn. Nú er enn á ný komin upp óvissa um framhaldið og biðtími eftir aðgerðum þar er langur. Farsælast væri ef að samstarf gæti orðið á milli Landspítalans og Klíníkinnar um flóknustu aðgerðirnar þannig að þekking og reynsla allra færustu sérfræðinga landsins kæmi saman með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Við óskum Endósamtökunum, endókonum og kvárum og öllum þeim sem starfa í þágu endósjúklinga, til hamingju með 20 ára afmælið. Betur má ef duga skal. Saman erum við sterkari! Höfundar eru fyrrum formenn Endósamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar