Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson skrifar 20. mars 2026 08:00 Hver stjórnar þeim stafrænu innviðum sem móta samfélag okkar í sífellt ríkari mæli? Er eflaust ein af mikilvægari stjórnmálalegu spurningum samtímans. En ef við viljum að slík umræða leiði til einhvers uppbyggilegs verðum við að nálgast hana af yfirvegun - út frá mismunandi sjónarhornum og gögnum. Að besta það sem fæst fyrir fjármagnið hverju sinni Mikil gagnrýni hefur verið á kostnaðinn sem hefur farið í að nútímavæða þjónustu borgarinnar. Það sem er áhugavert við þessa gagnrýni er að hún kemur úr tveimur mismunandi áttum á sama tíma - sjálfstæðismenn benda í sífellu á að borgin reki stærsta ,,hugbúnaðarhús” landsins og eigi að útvista meiru - á meðan hluti sósíalista bendir á að borgin sé of háð erlendum fyrirtækjum og eigi að innvista meiru. Sannleikurinn er sá að yfirleitt er hugbúnaður ekki smíðaður innan borgarinnar. Að jafnaði er um 65-75% fjármagns tengt stafrænum innviðum borgarinnar útvistað og 25-35% innvistað. Að tryggja það að kjarnaþekking byggist upp innanhúss til þess að taka upplýstar ákvarðanir, auka sveigjanleika borgarinnar og að gögnin séu eign borgarinnar og aðgengileg - eru grunnþættir sem þarf að huga að í þessari jafnvægislist. Innhýsing ákveðinna hlutverka er nauðsynleg til að tryggja samfellu, ábyrgð og ásættanlegan hraða í ákvarðanatöku. Úthýsing getur á móti verið góð til að fá m.a. utanaðkomandi augu, nýja þekkingu og reynslu að verkefnum. Hvernig hefur þetta áhrif á borgarbúa? Af yfir 200 þjónustu umbótaverkefnum borgarinnar hafa 35 þeirra þegar verið ábatametin og niðurstaðan er skýr: sparnaður borgarinnar nemur nú þegar yfir 1 milljarð króna á ári. Til samanburðar var heildarkostnaður Stafrænnar Reykjavíkur og tengdra eininga um 1 milljarður árið 2024. Fjárfestingin er með öðrum orðum að skila sér til baka og á sama tíma fá íbúar mun betri þjónustu. Um 57.435 klst. sparast árlega í vinnu hjá starfsfólki og íbúum samkvæmt fyrstu ábatamælingum - og við erum bara rétt að byrja. Byggingaraðilar þurfa ekki lengur að bíða í biðröð eftir þjónustu, teikningum eða skutlast á milli staða til þess að fá undirskriftir - umsóknir og gögn eru orðin aðgengileg rafrænt. Og 85% notenda eru mjög ánægð eða frekar ánægð með breytinguna frá pappír yfir í rafrænt umhverfi. Þá hefur íslenska sprotafyrirtækið Dala Care byggt upp framúrskarandi stafræna velferðarþjónustulausn, sem byggir á smáforriti í síma þar sem umönnunaráætlun er aðgengileg í rauntíma og þar sem notendur geta fylgst með og skráð mikilvægar upplýsingar. Lausnin er hægt og bítandi að auka öryggi og sjálfstæði yfir 4.000 notenda í heimaþjónustu hjá borginni og létta á vinnu hátt í 1.000 starfsmanna Reykjavíkurborgar. Þetta eru ekki hetjusögur um tækni tækninnar vegna. Þetta eru lausnir sem eru þróaðar að hluta til innanhúss og hluta til utanhúss, m.a. í samstarfi við aðra opinbera aðila og í samstarfi við íslenskt sprotafyrirtæki - allt metið út frá raunverulegum þörfum hverju sinni. Þetta er fjárfesting í tækni þar sem áhersla er lögð á gæði - fyrir fólk og fyrir samfélagið. Árangurinn lætur ekki á sér standa - og við getum öll verið stolt af honum. Stafrænt fullveldi er lýðræðismál, ekki tæknileg smámunasemi Stafrænir innviðir eru orðnir jafn mikilvægir og vegir, vatnsveitur, rafmagn og ljósleiðari - en samt er stofnanaleg geta til að stjórna þeim enn að ná í skottið á þróuninni. Núverandi umræða hefur varpað ljósi á hugtak sem er að verða sífellt mikilvægara um alla Evrópu: stafrænt fullveldi. Það snýst ekki um tæknilega einangrun, þjóðernishyggju eða láta af alþjóðasamstarfi. Það snýst um að tryggja að samfélagið hafi stjórn á þeim kerfum sem það reiðir sig á - með gagnsæi, ábyrgð og lýðræði að leiðarljósi - á tímum þar sem innviðir færa valdið í hendur fárra tæknirisa sem hafa í auknum mæli áhrif á allt frá opinberri þjónustu til stjórnmálaumræðu. Í nýrri stafrænni stefnu borgarinnar sem er nú í innra samráði segir að borgin eigi að vinna að stafrænu fullveldi og eflingu á stafrænni hæfni til að tryggja að borgin haldi forræði yfir eigin gögnum og kerfum. Það þýðir að draga eigi úr notkun lokaðra kerfa tæknirisa. Þá er lagt upp með að ábati stafrænna verkefna sé metinn reglulega eftir innleiðingu og að sú mæling komi fram í bókhaldi borgarinnar svo að nýting fjármuna sé gagnsæ fyrir borgarbúa. Ný innkaupastefna borgarinnar sem var til umræðu í borgarstjórn í vikunni byggir á sömu hugsun. Í stað þess að skrifa gamaldags kröfulýsingar sem festa fyrirfram lausnir í sessi, skilgreinir borgin í auknum mæli áskoranir sínar og kallar eftir hugmyndum frá markaðnum. Stefnan opnar dyrnar fyrir sprotafyrirtæki og frumkvöðla, og dregur úr valdi stórfyrirtækja sem hafa lengi hagnast á flóknum útboðum. Þannig fáum við tækifæri til að byggja upp þekkingu og lausnir hérlendis líkt og fyrrnefnd dæmi um rafræn byggingarleyfi og Dala Care sýna. Með því að fjárfesta í íslenskri þróun eflum við bæði nýsköpunarumhverfið og samkeppnishæfni borgarinnar. Undirritaður hefur verið hvatamaður að fyrrgreindum stefnum þar sem markvisst er unnið að því að nútímavæða hvernig stjórnun stafrænna innviða fer fram. Píratar hafa gagnrýnt of mikla úthýsingu tækniverkefna í ógagnsæ kerfi frá stofnun flokksins og við munum halda áfram þeirri vegferð. Við skiljum að áskorunin sem samfélagið stendur frammi fyrir er ekki að hörfa frá tækninni, heldur að móta hana af ásetningi. Ef okkur tekst vel til geta stafræn kerfi styrkt opinbera þjónustu, aukið gagnsæi, stórbætt þjónustuna og eflt borgina. Ef okkur mistekst er hætta á að við byggjum upp kerfi sem færa völdin smám saman frá lýðræðislegum stofnunum. Við munum ekki spara í stafrænum innviðum líkt og margir flokkar hafa kallað eftir - sérstaklega ekki á ólgutímum þegar netöryggi og sjálfstæði ríkja er ógnað. Það er eins og að spara aurinn og kasta krónunni. Munurinn milli góðs og slæms opinbers reksturs liggur ekki í því hvort tækni er notuð heldur hvernig henni er stjórnað. Hann liggur í stjórnarháttum. Markmiðið er í raun einfalt: Tæknin á að þjóna fólki - ekki öfugt. Kristinn Jón Ólafsson er oddviti Pírata í komandi borgarstjórnarkosningum og varaformaður Stafræns ráðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Jón Ólafsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Mest lesið Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar Skoðun Fáum samninginn á borðið Greta Lind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Króna eða evra? Umræða sem á skilið meira en slagorð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Her- og gervimenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson skrifar Skoðun Ísland séð úr leikskóla Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Félagsleg heilsa ræsisrottnanna Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar
Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun