Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2026 13:15 Maria Malmer Stenergård er utanríkisráðherra Svíþjóðar. EPA Sænskur ríkisborgari var líflátinn í Íran fyrr í dag. Frá þessu greindi Maria Malmer Stenergård, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í dag. „
Það er með skelfingu sem ég hef tekið á móti upplýsingum um að sænskur ríkisborgari hafi verið tekinn af lífi í Íran fyrr í dag,“ sagði ráðherrann. Stenergård segir að maðurinn hafi verið handtekinn í júní 2025. Í yfirlýsingu segir hún að hugur sinn sé hjá aðstandendum mannsins bæði í Íran og í Svíþjóð. „Dauðarefsingar eru ómanneskjulegar, grimmilegar og óbætanleg refsing. Svíþjóð og önnur ESB-ríki fordæma skilyrðislaust beitingu slíkra refsinga,“ sagði ráðherrann. Sænska blaðið Aftonbladet vísar í íranska fjölmiðla og segja manninn hafa verið grunaðan um njósnir. Á hann að hafa deilt myndum og upplýsingum með ísraelsku leyniþjónustunni Mossad – myndir og upplýsingar sem varða þjóðaröryggi Írans. Stenergård segir sænsk stjórnvöld hafa átt í viðræðum við írönsk stjórnvöld allt frá því að maðurinn var handtekinn í júní síðasta sumar. Í þeim viðræðum hafi sænsk stjórnvöld krafist þess að maðurinn myndi hljóta réttláta málsmeðferð og ekki vera dæmdur til dauða. „Ábyrgðin liggur alfarið hjá Íran. Svíþjóð mun halda áfram að fordæma alvarleg mannréttindabrot,“ segir ráðherrann.
Íran Svíþjóð Dauðarefsingar Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Sjá meira