Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Árni Sæberg skrifar 13. mars 2026 16:52 Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu að manninum fjarstöddum. vísir/vilhelm Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til innflutnings 2,5 kílóa af maríhúana. Þegar birta átti honum fyrirkall var hann hvergi finnanlegur og svo fór að útivistardómtur gekk í málinu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots, með því að hafa, í desember árið 2024, sótt og gert tilraun til að taka við tveimur póstsendingum sem innihéldu alls 2.486,7 grömm af maríhúana. Handtekinn við pósthúsið Annars vegar hefði komið póstsending til Íslands þann 3. desember 2024 sem innihélt 996,7 grömm af maríhúana og hins vegar póstsending sem kom til Íslands þann 18. desember 2024 og innihélt 1.490 grömm af maríhúana. Lögregla hefði lagt hald á fíkniefnin í póstmiðstöð í Reykjavík og skipt þeim út fyrir gerviefni. Maðurinn hefði sótt póstsendingarnar í póstmiðstöðina að þann 19. desember 2024, veitt þeim viðtöku og gengið með þær út á bifreiðastæði við póstmiðstöðina, þar sem hann hefði verið handtekinn. Fannst ekki Þá segir í dóminum að til hafi staðið að þingfesta málið 27. janúar 2026, en birting fyrirkalls ekki tekist. Upplýst hafi verið af sækjanda að maðurinn fyndist ekki og að ekkert væri vitað hvar hann gæti verið niður kominn. Gefið hafi verið út nýtt fyrirkall sem birt var í Lögbirtingablaði 4. febrúar 2026 og málið þingfest 10. mars. Maðurinn hafi ekki sótt þing við þingfestingu málsins og ekki boðað forföll þrátt fyrir löglega birtingu ákæru og fyrirkalls í Lögbirtingablaði. Því hafi svokallaður útivistardómur gengið í málinu og sú háttsemi sem manninum var gefið að sök verið talin sönnuð. Hann var dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar, til að þola upptöku á 2,5 kílóum af maríhúana og til greiðslu 277 þúsund króna í sakarkostnað.
Dómsmál Fíkniefnabrot Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira