Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar 13. mars 2026 11:01 Þegar Írland gekk í Evrópubandalagið árið 1973 (forvera Evrópusambandsins, ESB) var sameiginlega sjávarútvegsstefnan enn í mótun. Í aðildarviðræðunum lagði Írland mikla áherslu á stöðu strandbyggða og verndun nálægra fiskimiða. Niðurstaðan varð sú að m.a. var kveðið á um takmarkaðan aðgang annarra aðildarríkja EB að 6 og 12 sjómílna belti við strendur landsins. Þetta fól þó ekki í sér undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Reglur um heildarafla, kvótakerfi og aðgang að miðum urðu hluti af sameiginlegri stefnu sem í dag er ákveðin af ESB. Þegar sjávarútvegsstefna ESB var endurskoðuð 1983 var innleidd svokölluð regla um „hlutfallslegan stöðugleika“ (relative stability), sem tryggði Írlandi fast hlutfall í kvótaúthlutun á grundvelli sögulegrar veiðireynslu. Það styrkti stöðu landsins innan kerfisins – en breytti ekki því að valdið lá hjá sambandinu. Þetta er svokölluð „Hauge Preference“ eða Haag-viðmið. Þessi regla hefur stundum verið notuð sem dæmi um „sérlausn“. Lagalega séð er þetta aðlögun innan ramma sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu, ekki varanleg undanþága frá henni. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan fellur undir einokunarvald ESB samkvæmt 3. gr. TFEU (Sáttmálans um starfsemi ESB). Þar eru skilgreindir þeir málaflokkar sem falla undir svokallað einkavaldsvið sambandsins. Á þeim sviðum framselja aðildarríkin lagasetningarvald sitt við aðild. Í vetur risu deilur innan ESB um þessi Haag-viðmið, sem veittu Írlandi (og raunar átti þetta líka við um Bretland meðan það var aðili að sambandinu) ákveðinn forgang að veiðiheimildum við landið. Þegar meirihluti aðildarríkja samþykkti breytingar á kvótaskiptingu kom í ljós að Þetta fyrirkomulag er ekki fest í sáttmálum sambandsins heldur er hluti af framkvæmd sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar og því hægt að endurskoða innan hennar. Kjarni málsins er því þessi: Írland samdi um aðlögun varðandi fiskveiðistefnuna við aðild 1973. Landið fékk hins vegar ekki varanlega lagalega undanþágu frá henni. Valdheimildir á sviði sjávarútvegs færðust við aðild að EB og síðar ESB til sambandsins og ákvarðanir eru teknar innan þess ramma. Þetta er grundvallaratriði í umræðu um „sérlausnir“ – hvort um sé að ræða pólitíska útfærslu innan kerfis eða raunverulega breytingu á valdsviði samkvæmt sáttmálum. Þegar vísað er til „sérlausnar Írlands“ í íslenskri umræðu er því mikilvægt að greina á milli tveggja ólíkra hluta. Annars vegar eru það pólitískar útfærslur og aðlögunarráðstafanir sem samið er um við inngöngu. Hins vegar eru það formlegar undanþágur sem breyta sjálfu valdsviði sambandsins samkvæmt sáttmálum þess. Slíkar undanþágur eru því aðeins varanlegar að þær séu festar í grunnlöggjöf sambandsins. Þetta er grundvallaratriði í umræðu um „sérlausnir“. Greina þarf á milli pólitískrar aðlögunar innan kerfis og formlegrar undanþágu sem breytir valdsviði samkvæmt sáttmálum sambandsins. Slík undanþága er því aðeins varanleg að hún sé fest í frumrétti ESB. Þetta er sá greinarmunur sem reynslan frá Írlandi dregur skýrt fram. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Skoðun Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar