Síðasti sjéns að mótmæla varðhaldi saklausra barna Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar 4. júní 2026 12:02 Litli kallinn minn er að útskrifast af leikskóla í dag. Ég trúi ekki hvað hann er orðinn stór. Hann er skemmtilegasta og fallegasta manneskja sem ég hef kynnst. Næsta haust byrjar hann í skóla. Þetta er svo skemmtilegur aldur. Ég vona að hann reiðist mér ekki fyrir að segja ykkur frá því að um daginn vorum við og Lísa frænka að horfa á Línu Langsokk og þegar senan kemur þar sem Lína hjólar án nokkurra dekkja grípur Flóki fyrir muninn því hann er svo hissa. Því næst spyr hann mig: Mamma hvernig fer hún að þessu!! Lína getur allt, segi ég og þau horfa á hvort annað og endurtaka: Lína getur allt! Þetta er aldur þar sem heimurinn er undur og allt er hægt og krakkar geta allt. Alþingi íslendinga munu, líklega á morgun, samþykkja frumvarp, sem vísvitandi tekur undrið, galdurinn og öryggið úr barnæsku þeirra barna sem frumvarpið bitnar á. Fólkið sem við kusum eru með opin augun að fara samþykkja frumvarp sem veldur börnum, sama hversu stutt þau dvelja í brottfararbúðum, óafturkræfum skaða. Þau eru búin að eyða vikunni, vetrinum, í að hlaupa í allskonar hringi. Ég heyrði í vikunni dómsmálaráðherra reyna að snúa umræðunni út í það að ef við setjum börn ekki í búðir þá er ekki hægt að brottvísa þeim og þá verður til séríslenskur segull fyrir fólk með börn að flýja hingað og það setji börn í hættu. Sannleikurinn er sá að það er dómsmálaráðherra og Alþingi sem er að velja að setja börn í hættu. Hún reyndi líka að sannfæra okkur um það að vista fjölskyldur í brottfararbúðum yrði allra síðasta úrræðið sem gripið væri til. Þetta væri bara hugsað fyrir þær fjölskyldur og börn sem sýndu ekki samstarfsvilja við brottvísun, neituðu að hlýða. Getum við aðeins staðnæmst og hugsað í hvernig aðstæðum fjölskylda með börn er í sem getur ekki hugsað sér að vera brottvísað út í óvissuna og reynir að koma í veg fyrir það. Þau óttast meira það sem er út í heimi heldur en afleiðingar stjórnvalda hér á landi. Þetta er fólkið sem er svo rosalega mikilvægt að læsa inni. Ég var fram á nótt að lesa skýrslu/rannsókn um hvaða áhrif brottfararbúðir hafa á börn. Ein rannsóknin sagði að hvernig við vesturlönd komum fram við þau í umsóknarferlinu og svo við varðhald og brottvísun getur haft verri áhrif á þau til frambúðar en það sem þau eru að flýja. Þessi börn eru í aukinni áhættu á að taka sitt eigið líf. Þetta ætlar Alþingi að samþykkja með opin augu. Við þurfum að átta okkur á því að börnin sem munu fara í þessar búðir skilja oft ekki af hverju það er verið að handtaka þau og fjölskyldunni þeirra með valdi. Það er ekki bara það að læsa þau inni sem veldur þeim skaða heldur líka að þurfa horfa upp á foreldra þeirra og systkini í þessum aðstæðum. Að þurfa horfa upp á foreldra sína verða fyrir agaviðurlögum og horfa upp á foreldra sína viti sínu fjær af áhyggjum og ótta. Það er líka verið að ræna foreldrum þeirra þeirri reisn að geta verndað þau fyrir þessu öllu. Þetta eru börn sem hafa áður en þau komu hingað upplifað hluti sem enginn börn eiga nokkurn tíma að þurfa upplifa. í rannsókninni kom fram að börnin sem dvöldu í brottfararbúðum voru t.d búin að missa fjölskyldumeðlimi eða þurfa að horfa upp á vopnuð átök áður en þau komu til landsins sem læsti þau inni. Í rannsókninni kom fram að börnin voru að vakna upp við martraðir, að vera læst inni minnti þau á fyrri reynslu. Þau voru að pisssa undir á nóttinni. Svo að starfsmennirnir ykkar sem þurfa að læra að beita valdi verða að setja pissublaut lök barna með áfallastreitu í þvottinn. Hver vill vinna við að valda börnum meiri skaða? Rétt áður en ég fór að sofa sá ég status frá Kristrúnu Frosta um aðbúnað barna á fósturheimilum. Hún segir að fátt hafi hreyft jafn mikið við henni í starfi eins og Bakkakotsmálið. Að heyra frásagnir fullorðins fólks um að hafa sem börn þurft að upplifa aðstæður sem börn eiga aldrei að upplifa. Að samþykkja að læsa börn inni í brottfararbúðum er eins og að senda börn á Bakkakot með opin augun, vitandi hvaða skaða þau hljóta af því. En börnin í brottfararbúðunum munu aldrei sem fullorðin hafa tækifæri á því að segja okkur frá dvölinni í íslenskum brottfararbúðum því það verður búið að senda þau öll burt út í óvissuna. Þetta vita þingmenn. Í dag eru mótmæli fyrir utan Alþingishúsið. Þetta er seinasta tækifærið okkar til að sýna þingheimi að þetta gengur fram af okkur, að við viljum þetta ekki. Mótmælin eru kl 15. Þar sem útskrift litla kallsins míns er á sama tíma þá sé ég ykkur þar þegar útskriftin er búin. Við læsum börn ekki inni: Nei við Brottfararstöð! Höfundur er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun