Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Árni Sæberg og Eiður Þór Árnason skrifa 12. mars 2026 15:04 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gætti hagsmuna Eljumanna en Gísli Tryggvason stóð vaktina fyrir Hjálmar í dómssal. Vísir Hjálmar Friðriksson blaðamaður á Samstöðinni hefur verið sýknaður í Landsrétti af stefnu þriggja fjárfesta og félags þeirra vegna ummæla í fréttum í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023. Fjárfestarnir og félagið þurfa að greiða honum 1,4 milljónir króna í málskostnað.
Dómar Landsréttar þess efnis voru kveðnir upp í dag. Í máli Elju - þjónustumiðstöðvar atvinnulífsins hf. féllst Landsréttur á það með héraðsdómi að við heildstætt mat á ummælum Hjálmars yrði að leggja til grundvallar að þau hefðu verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks hér á landi, einkum búsetuaðstæður þess, að umræða um þessi atriði ætti erindi við almenning og að mikilvægt væri að hún færi fram. Óumdeilt væri að eigendur hefðu á undanförnum árum, í gegnum félög þeirra á borð við Elju, rekið starfsmannaleigu og leigt út húsnæði til erlends verkafólks, auk þess sem fyrir lægi að mikil umsvif hefðu fylgt starfsemi þeirra. Í aðskildu dómsmáli kröfðust fjárfestarnir Arnar Hauksson, Jón Einar Eyjólfsson og Pétur Árni Jónsson þess að ummæli sem Hjálmar viðhafði í umræddri frétt yrðu dæmd dauð og ómerk. Landsréttur tók þar einnig undir með héraðsdómi að ummælin tengdust almennri umræðu sem ætti erindi við almenning og „mikilvægt væri að hún færi fram.“ Óumdeilt væri að mennirnir þrír hefðu á undanförnum árum, í gegnum hlutafélög þeirra, rekið starfsmannaleigur og leigt út húsnæði til erlends verkafólks. Þá væri ljóst að ummælin hefðu lotið að þátttöku þeirra í umsvifamikilli starfsemi en ekki að einkalífi þeirra. Ekki fullyrt að félagið hafi orðið valdur að dauða mannsins Í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“ Landsréttur horfði hér til þess að Elja er lögaðili og nýtur þar með ekki stjórnarskrárbundinnar æruverndar líkt og einstaklingar. Í báðum dómum segir að ekki verði annað talið en að með fyrrgreindum orðum væri almennt vísað til tiltekinnar starfsemi sem kalla megi nútíma þrælahald og dregið hafi mann til dauða hér á landi, án þess að fullyrt væri að félagið eða fyrirsvarsmenn þess hafi beinlínis orðið valdir að dauða hans. Erlent verkafólk í húsinu Það var þann 16. október 2023 sem eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða í Reykjavík. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans en fjöldi fólks bjó í húsinu, að megninu til erlent verkafólk. Einn slasaðist alvarlega og lést af sárum sínum. Fram kom í fréttum í kringum eldsvoðann að húsnæðið væri að mestu í eigu tveggja félaga í eigu þriggja manna; Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóra Heildar fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmanns hjá Elju starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá Elju. Þremenningarnir stefndu Hjálmari fyrir ummæli sem birtust í tveimur fréttum á vef Samstöðvarinnar. Fréttirnar voru undir fyrirsögnunum: „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ Og: „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars“. „Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða“ Ummælin sem þremenningarnir kröfðust að yrðu dæmd dauð og ómerk voru: 1. Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi 2. Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða. 3. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þrælahaldi. Svo er raunin með Elju. Pétur, Jón Einar og Arnar kröfðust hver um sig þriggja milljóna króna í bætur en auk þess var krafist sex milljóna króna í skaðabætur fyrir hönd Elju starfsmannaþjónustu. Hjálmar var sýknaður af öllum kröfum þeirra. Fréttin var uppfærð eftir að dómar Landsréttar voru birtir.
Bruni á Funahöfða Dómsmál Fjölmiðlar Tjáningarfrelsi Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira